Frida님의 프로필Freknótt í fíling사진블로그리스트기타 ![]() | 도움말 |
|
10월 31일 Heim... Fékk að vita í dag eftir að starfsmaður IcelandAir hafði samband að það er búið að fella niður flugið mitt heim!!! Eftir mikið panic og bollaleggingar þá verður það úr að í staðinn fyrir að fljúga frá Man þann 12 þá fer ég frá London þann 15... en hey maður kemst að minnsta kosti á klakann fyrir jól (ef það verða ekki fleiri flug felld niður...) 10월 24일 F**k Ég er búin að vera of lengi í burtu... er 500 kallinn rauður... eigum við yfir höfuð 500 kall!!! Guð hvað ég man þetta ekki... 10월 23일 Jiiii, hvað það er gaman að vera líffræði geek stundum... Byrjaði daginn á að fara í þrefaldann tíma í forritun... Fór svo á hádegisfyrirlestur hjá Dr. Phil Grime!!! Sæla :) 10월 17일 Íslendingur í UK Merkilegt hvað það hefur lítið gerst síðan síðast og því lítið að skrifa um þrátt fyrir að manni finnist hálfpartinn að heimurinn sé að farast. Var spurð snemma að því, af einstaklingi sem átti Icesave reikning, hvað væri best fyrir hann að gera! Og svo eru margar aðrar spurningar um stöðuna búnar að fylgja eftir frá ýmsum einstaklingum síðan þá. Merkilegt alveg að fólk virðist halda að með því að vera frá landi sem rambar á barmi gjaldþrots þá verði maður allt í einu efnahagssérfræðingur. Get nú reyndar ekki neitað því að ég hef fylgst óvenju mikið með fréttum undanfarið og er því svo sem alveg í stakk búin að svara fyrir land og þjóð og trúið mér það er alveg þörf á því, allt í einu er litla Ísland orðið heimsfrægt í Bretlandi. Lenti í því um daginn að mjólkurpósturinn kom til að rukka fyrir mjólkina en ég var ekki með lausan pening á mér, þá heyrðist í honum í gegnum glottið: "tja þú ert náttúrulega Íslendingur og átt þar af leiðandi enga peninga, ekki satt... eru þið farin að versla með fisk ;)". Ójá, fíla annars voða vel að vera með mjólkurpóst!!! 10월 5일 Loksins loksins...Jæja, langt síðan síðast og líklega svo komið að ekki nokkur lifandi sála kíkir hérna inn lengur.
Svo mikið vatn er runnið til sjávar síðan ég skrifaði hér inn síðar að ég man nú bara ekki helminginn og líklega hafa nú bara flestir frétt mest af því nú þegar.
Kannski mest um vert er að ég fór til Póllands, Helga og Júlía komu í heimsókn (miðað við gengi krónunnar er ekki líklegt að nokkur komi í heimsókn til mín framar), undirbjó ráðstefnu (ekki ein samt ;), skrapp með hóp furðulegra snjáldurmúsa sérfræðinga til heimilis Darwin og til að sjá síðustu leifar Dódó fugls í heiminum. Og kannski það merkilegasta af öllu er loksins komin með vísindagrein á ferilskránna mína, og það sem meira er, vísindagrein sem hefur verið fjallað um nánast pólanna á milli m.a. í Suður-Afríku, Kanada og Noregi!!!
Jamm... I like being green...
xFr. |
|
|