Frida님의 프로필Freknótt í fíling사진블로그리스트기타 ![]() | 도움말 |
|
12월 31일 Í lok ársSit nú og bíð eftir fréttatíma RÚV og datt þá í hug að þar sem líður að nýju ári og tíma áramótaheita þá væri nú ekki úr vegi að taka sig aftur á með bloggið og kannski rifja upp árið sem er að líða svona í leiðinni.
Ekki það svo sem ekki mikið búið að gerast á árinu.
Eyddi ótilhlýðilegum tíma í skólanum og í skólatengda viðburði en öttli það sé nú ekki bara þess virði þar sem maður veit nú víst miklu meira en áður, kemur til með að útskrifast með láði og er nú í rannsóknum hjá honum Jeremy sem er nöttla ógó spennandi.
Í ferðatengdum fréttum þá fór ég til Mallorka (og rannsakaði leðurblökur), til Wales (og fann sólina í nærri eina skiptið í sumar), fór til Skotlands (og hlustaði á KT Tunstall og fleiri) og fór til Dublin (og hlustaði á REM!!!)
Í tónlistarlegum fréttum þá fór ég á REM í dublin (eins og áður sagði) og hlustaði á lög af plötunni sem kemur út á næsta ári. Svo fór ég í fyrsta sinn á heimatónleika þar sem Bandarísk Bluegrass hljómsveit spilaði í stofu einhvers fólks sem ég þekki ekki neitt. Þá fór ég á útihátíð í Skotlandi þar sem Idelwilde, KT Tunstall og fleiri skemmtu manni í grenjandi rigningu. Já og meðal þess sem ég er ekki búin að gleyma var líka tónleikar með Dreytones á Fibbers. Líklega var nú eitthvað fleira í gangi sem ég man nú bara ómögulega.
Í veðurtengdum fréttum er það helst að það var rigning...
Já annars eins og ég segi lítið að frétta af árinu... á næsta ári verður væntanlega eitthvað að frétta eins og:
- útskrift
- nýr diskur með REM og þess vegna tónleikar!!!
- nýr hittingur með konsúlnum vegna forsetakosninga?
og margt margt fleira... þið bíðið bara spennt
knús og áramótakreistur
xFr. |
|
|