Frida's profileFreknótt í fílingPhotosBlogListsMore Tools Help

Blog


    February 27

    Líffræði

    Líffræðingur einn hafði áhuga á því að vita hversu langt froskar stökkva.  Hann náði sér því í eitt stykki, lagði hann á gólf rannsóknarstofunnar sinnar og skipaði honum að stökkva.
    Froskurinn stökk af stað yfir stofuna og eftir að hafa mælt lengd stökksins skráði líffræðingurinn: "froskar með fjóra fætur stökkva 8 fet"
    Jæja, þessu næst skar hann framfætur frosksins af og skipaði honum aftur að stökkva.
    Froskurinn átti í byrjunarvandræðum en náði að lokum að stökkva af stað.  Eftir að hafa mælt lengd stökksins skráði líffræðingurinn: "froskar með tvo fætur stökkva 3 fet".
    Að lokum skar líffræðingurinn afturfæturnar af froskinum og skipaði honum að stökkva.
    En froskurinn lá bara kyrr.
    Stökktu froskur, stökktu.  Endurtók líffræðingurinn en ekkert gerðist.
    Að endingu skráði líffræðingurinn niður: "froskar með enga fætur - missa heyrn"

    En já, ekki það mín reynsla sem líffræðingur en náttúrulega ekkert þessu lík... Er meira að vinna með svona... látin dýr og svo náttúrulega skriffinsku eins og lög og reglugerðir, styrkumsóknir og  ráðleggingar um ákveðin efni (geðveikt fyndið að ÉG sé að skrifa ráðleggingar sem ættu að vera fyrir bæjafélög um vistfræði og vernd).

    Nenni samt ekkert að skrifa er með kvef í augunum og er að hugsa um að fara að sofa...

    February 26

    JEEEEEEEEEEYYYYYYYYYYYYYYYY

    Vúhúúúúúúúú... (hugsið ykkur mig dansa sigurdans fram og til baka)
    Eftir hörmungar síðustu viku snéri ég aftur til betri vegar í dag og PCR-ið mitt virkaði fullkomlega.  Er búin að sætta mig við að aðferðin sem átti að vera svoooo góð virkar bara ekki á mitt DNA og því geri ég þetta bara eins og ég vil.  Merkilegast finnst mér samt eftir að hafa verið farin að efast um getu mína að þetta PCR virkaði alveg þrátt fyrir að Rodrigo hafi verið fjarri góðu gamni og ég hafi varla verið að fylgjast með því sem ég var að gera þar sem Noel kom og var að trufla mig.  Ótrúlega fyndin týpa hann Noel, hann var ekkert smá montinn, hann var nefninlega á sameinda námskeiði í Sheffield í síðustu viku og lærði þar að nota PCR og setja á gel og svoleiðis, honum tókst að setja í PCR með smá aðstoð og skemmti bara eitt gel með því að stinga út úr vasanum. Hahahaha.  En já, honum fannst þetta mjög merkilegt og var að reyna að blikka mig með að hjálpa honum með maurana sína... meira hahahaha...
     

    Radísur og Decaf

    Gaf mér tíma til þess að líta upp úr bókunum áðan og skella mér í búð enda farið að þynnast í ísskápnum.  Jæja, stefnan var sett á Sainsbury's sem selur ekki kartöflumjöl en mér til mikillar gleði seldi það eiginlega allt annað sem ég þurfti auk hluta sem ég hafði ekkert að gera við.  Keypti t.d. radísur sem ég hef nú bara ekki bragðað í háa herrans tíð og eru svooooo góðar.  Jú og svo ákvað ég að það væri nú kannski góð hugmynd að kaupa decaf te í þetta skiptið, ekki það, efast stórlega um að undanfarnar andvökunætur séu af völdum te drykkju... Jæja, annars keypti ég nú ekki mikið fleira merkilegt... grænmeti, ávexti, brúnt pasta, kjúklingabaunir, linsubaunir og svo framvegis... Hey ég ætti kannski að fara að gera þetta oftar, þegar mér dettur ekkert í hug til að blogga þá birti ég bara innkaupalistann minn ;0) Enjoy
    February 24

    Aðeins eftir á

    Eftir að hafa fært símann til á borðinu um daginn áttaði ég mig allt í einu á því að hann er nú líklega bara nýtilegur til annars en að hringja milli herbergja í Wentworth!  Jæja, svo þegar ég var að tala við Helgu í dag þá ákvað ég nú að gefa henni upp númerið og viti menn... hann bara virkar milli landa.  Þ.a. ég er nú barasta með heimasíma sem er víst ódýrara að hringja í heldur en gemsann minn.  Alla vega þá er númerið 0044 870 758 2835, nenni sko ekki að vera senda sms, tölvupóst eða eitthvað til að tilkynna þetta.
     
    February 23

    Gleðilegt nýtt ár....

    Ég veit að það var fyrir nokkrum dögum en þar sem ég var í áramótamat hjá Ji Lin áðan þá varð ég nú bara að koma þessu að.  Frekar furðulegur matur en samt mjög næs.  Kemst ekki yfir þetta trend hjá sumum hópum kínverjanna hérna að endurskíra sig og þau virkilega nota ensku nöfnin sín á milli Ji Lin er t.d. Connie, veit ekki alveg hef aldrei lent í vandræðum með Ke, Bai og Mau Mau... hmmm kannski ekki alveg marktækt þar sem Bai er ættarnafn Bai (heitir X-eitthvað) og Mau Mau er gælunafnið hennar (samt frá Kína, hún heitir Yue Ju í alvörunni).
     
    Annars get ég nú ekki látið dag líða án þess að minnast á DNA-ið mitt.  Jæja, ég átti fund með Jeremy og tékkanum í dag og þar var sett upp plant.  Samkvæmt fyrsta lið plansins settum við Rodrigo í PCR í morgun strax eftir fundinn, NB Rodrigo setti í PCR þar sem ég þurfti að fara í tíma hjá Peter Mayhew og hafði bara tíma til að merkja túburnar og finna til það sem Rodrigo þurfti.  Jæja, ég kom svo aftur eftir alla fyrirlestrana í dag og setti í gel og viti menn EKKERT!!!! Ekki einu sinni skrítnu böndin sem ég fékk í fyrradag og heldur ekki jákvæða sýnið (sýni sem ég stal frá Andrew og hafði virkað hjá honum) og þar sem Rodrigo gerði þetta allt þá hef ég meira að segja fullvissu fyrir því að þetta sé ekki bara ég. Úfff.... næsta skref verður tekið kl. 9 á mánudag þar sem ég þarf að setja í enn eitt PCR-ið með annarri uppskrift.  Mabel var búin að bjóðast til að mæta á labbann á morgun til að ég gæti unnið (lykilkortið mitt virkar bara milli 8 og 6 á virkum dögum í J block!!!) en þar sem bún þurfti að mæta annað vegna tékkanst þá varð ekkert úr því.  Hvað gæti verið betra en að nota ekki bara alla virku dagan heldur líka helgarnar í labbavinnu...
    February 22

    Bjakk

    Það er alltof skrýtin tilfinning að vera á tánum í inniskóm, mæli ekki með því

    When good DNA goes bad...

    Eftir heilan dag í skólanum labbaði ég mér upp á bókasafn og náði mér í nokkrar bækur til að leggjast yfir í kvöld.  Einhvern veginn finnst mér samt þessi 29cm hái bunki ekki árennilegur og langer þess vegna ekkert að eyða kvöldinu í hann.  En hvað getur maður eiginlega gert annað en að lesa og lesa og lesa aðeins meira þegar maður á fyrir höndum sér neyðarfund kl. 9 í fyrramálið með Jeremy og Rodrigo og hver veit nema tékkinn sem er í heimsókn hjá Jeremy komi líka þar sem hann lenti víst í svipuðum aðstæðum og ég einhvern tíman í denn og gæti þess vegna aðstoðað mig.  Annars liggur það nú víst fyrir mér að eyða allri næstu viku í að skera upp snjáldurmýs á hinum ýmsustu stöðum til að meta hvar séu mestar líkur á að finna DNA sem virkar þar sem það að ískápurinn þar sem þær voru geymdar skildi hafa bilað virðist hafa haft áhrif á gæði DNA-sins.
     
    En alla vega það eru líklega allir orðnir þreyttir á þessu DNA tali, sorry þetta er bara það eina sem ég hugsa um þessa dagana.  Af öðrum fréttur er það helst að... hmmm... újá, ég sá að the Last King of Scotland er að koma í bíó heima.  Endilega farið að sjá hana, búið ykkur undir að hún er svakalega en endilega farið að sjá hana Forest Whittaker er geggjaður í hennig og á svo sannarlega skilið þessi verðlaun sem hann er búinn að vera að sópa að sér.  Eitthvað annað... jú það er tilboð á Pot noodle súpum í Costcutter...
    February 21

    I like it like that and I know it...

    Þegar maður er dapur þá nennir maður ekki að elda alvöru mat heldur sýður sér grænmeti og borðar ostabrauð.  En af hverju skyldi maður vera svo dapur að maður eldar ekki... æ kannski bara vegna þess að DNA-ið manns er kannski bara ekki að gera sig heldur gerir bara skrýtna hluti sem enginn skilur hvorki maður sjálfur eða stóra fólkið á labbanum... mikið vildi maður að DNA-ið manns færi nú að haga sér almenninlega, það virðist bara alls ekki kunna sig
    February 20

    Rrrrrrrrrrrrrr

    Fór í þann tilgangslausasta tíma í Wildlife Management sem um getur í dag.  Vorum sem sagt að meta áhrif innfluttra tegunda á Nýja Sjálandi og gerðum það með R.  Hálftíma eftir að tíminn byrjaði var ég búinn með módelið og sat hin rólegasta og beið eftir að hinir mundu nú klára svo við gætum farið yfir í umræður þar sem það er frekar tilgangslausta að umræða við sjálfan sig.  Rúmum klukkutíma síðar leit Lucy upp, brosti til mín og sagði "jey, ég er búin... hvað heldurðu að þetta merki".  Já ég sem sagt fékk fyrsta einstaklinginn í bekknum til umræðna eftir að hafa setið og beðið í klukkutíma!!! Ég veit að ég er náttúrulega rosalegur R nörri en come on, fólk var að taka þetta á 2 klst... úff, alla vega fáum almenninlegar umræður í verklegum í næstu viku...
     
    Annars virðist svo vera að það hafi eitthvað verið að vinnulausnunum mínum þar sem PCR-ið virkaði ekki heldur í dag.  Þar af leiðandi þarf ég að búa til vinnulausnir á morgun og reyna einu sinni enn... ég vil bara ekki trúa því að nýja fína prógrammið sem við settum inn í PCR vélina sé ekki að virka fyrir DNA-ið mitt, vona að það sé bara eitthvað að A-inu, C-inu, G-inu eða T-inu.
    February 19

    Lame bolludagur

    Engin rjómabolla handa mér, eða nokkur bolla yfir höfuð (ef ég er ekki talin með). 
    Kauptaði mér samt e-s konar rjóma bollulegt stykki en það var bara ekki eins. 
    Var að reyna að fá fólk til að mæta í búningum á miðvikudaginn en þar sem það er algjör labbadagur þá virkar það ekki. 
    Fæ enga baunasúpu á morgun... en kannski pönnuköku þar sem það er pönnukökudagurinn hér!
    PCR-ið mitt virkaði ekki!!! Virkaði hjá Andrew, stöndum alveg á gati hvernig stendur á þessu en það merkir að ég þarf að mæta fyrir tíma í fyrramálið á labbann á meðan Andrew getur sofið rólegur...
    Nenni ekki að læra en þarf að skrifa upp samantekt úr nokkrum greinum þ.a. Gemmu gangi betur með fyrirlesturinn á fimmtudaginn, ekki veitir mér af góðum samantektum frá þeim þegar ég þarf að vera með fyrirlestur hjá smásmugulegasta og þrætugjarnasta kennaranum hérna, ekki það elska Peter Mayhew alveg út af lífinu...
     

    Hvernig tókst mér að klúðra þessu?

    Er "heima" núna.  Hefði ef ég hefði haft rétt fyrir mér átt að vera á labbafundi núna en þar sem ég hafði ekki rétt fyrir mér þá er hann búinn og ég missti af honum.  Veit ekki alveg hvernig stendur á því en ég hafði samband við Andrew og honum tókst líka að missa af honum þar sem við héldum bæði að hann ætti að vera kl. 12:15.  Það versta er að Rodrigo átti að vera með labbafundinn og við vorum að tala um að  hann væri kl 12.15 þegar við vorum í labbanum á föstudaginn.  Allavega veit þá Rodrigo af hverju við vorum ekki þar, hann hefði nú samt mátt láta okkur vita þegar hann fattaði að við vorum öll með vitlausa tímasetningu á þessu.  Þoli ekki þegar það er verið að rugla svona fram og til baka með tímasetningar, þeir eru vanalega kl. 12.15!
    February 18

    Malham

    Skrapp til Malham í dag með Claire.  Lucy ætlaði reyndar líka en sökum þess að hún svaf yfir sig og leið of vel í náttfötunum til að fara af stað kl 9 þá varð lítið úr göngunni hjá henni. 
    Alla vega þá er Malham uppi í dölum sirka 1 og hálfan tíma akstur frá York.  Rosa gott að komast aðeins af campus og fá smá göngutúr í ferska loftinu... nenni ekki að skrifa meira, setti inn nokkrar myndir
    February 17

    MIKA here we come...! =0)

    JEEEEHHHHH....
    Eftir miklar umræður, spenning og pælingar erum við búin að panta miða á Mika í Leeds í Maí!!!!!!!!!!!!!
    Úff, get ekki beðið, verður ábyggilega frekar skemmtilegt og þá sérstaklega með tilliti til þess að þetta er sama dag og við erum með plaggat kynninguna þ.a. það verður fínt að sleppa sér smá eftir allan þann taugastrekking...
    Alla vega, vúhú...!

    Hvað verður um bolludaginn...?

    Labbaði í Sainsbury's áðan.  Þrátt fyrir ítrekaða leit tókst mér ekki að finna kartöflumjöl sem er nauðsynlegt innihaldsefni í kartöflubollum.  Er frekar miður mín þar sem ég veit nú ekki hvar er hægt að leita næst þar sem þetta var staðurinn þar sem það ætti að fást ef það fæst einhversstaðar.  Hugsa að ég verði að draga Rosy eða Claire með mér í ítarlega leit þar sem ég hafði hug á að búa til kartöflubollur á mánudaginn þar sem ég fá víst engar rjómabollur :0(
    February 16

    Do we smell...?

    Vúhú, fékk matartíma í dag.  Reyndar borðaði ég frekar lítið þar sem ég var svo södd eftir að hafa borðar afmælisköku sem Lucy bakaði þar sem Lindsay varð 25 í dag. 
    Manni veitti nú ekki af smá köku eftir tíma í Corel Draw þar sem tölvugaur var að hræða okkur með því hvernig á að gera fallegt plaggat.  Come on við erum vistfræðingar ekki hönnuðir og viljum ekki vera tölvunördar þó að það sé nú sífellt verið að ýta okkur í þá átt.  Við urðum alla vega frekar skelfd við þetta þar sem þetta varð til þess að minna okkur á poster sessionið eftir Mallorka ferðina (við fáum sem sagt ekki bara að sleikja sólina, þurfum að vinna). 
    En jæja, það er samt frekar fyndið að við EEM liðið fáum aldrei að hitta hina mastersnemana í líffræðinni.  Hinir 3 hóparnir fá transferable skills fyrirlestra saman en í basic hlutum eins og Corel Draw sem allir hóparnir þurfa líklega að taka þá fáum við ekki einu sinni að vera með.  Vistfræðingar lykta sko ekkert illa...
     
    February 15

    Mikið um að ske

    Vúhú... Bylgja fékk diskinn frá mér í dag... Hún skal fíla MIKA
     
    Eyddi 10 klst í skólanum í dag, þar af 5 klst í labbanum og afgangnum í tímum.  Og bara til að taka það fram, þessir 10 tímar eru ekki með mat þar sem við þurftum að borða í fyrirlestri þar sem það var bara ekki tími.
    Komumst að því að meiri hlutinn af því sem við gerðum í gær virkaði bara frekar fínt þ.a. þetta er allt saman í áttina, gengur bara hægt og rúmlega 30 klst af labbavinnu á einni viku auk 15 klst í tímum auk lestrar og þess háttar er bara ekki að gera sig.
     
    February 14

    labbidílabb

    10 klst á labbanum í dag!
    Það versta við DNA vinnu er að maður púlar heilu og hálfu dagana en þar sem maður sér ekki blessað DNA-ið sem maður er að vinna með þá veit maður ekkert hvort maður er yfir höfuð með eitthvað í höndunum.  Ég þarf nefninlega að valda einlægum aðdáendum bandarískra sjónvarps spennuþátta vonbrigðu.  DNA niðurstöður fást ekki á 15 mínútum og bregðast nokkuð oft af ókunnum ástæðum þ.a. það þarf að endurtaka og endurtaka og endurtaka.  Það gæti sem sagt verið að við komum á morgun á labbann og komumst að því okkur til mikillar gremju að ekkert af því sem við gerðum í dag hafi virkað.  Sem betur fer sagði Rodrigo að ef svo illa færi (7,9,13) þá mætti ég öskra blótsyrði, þ.e. á íslensku til að misbjóða engum ;0)
     
    Annars gætu verið svolítið spennandi í uppsiglingu, við Rosy og Claire ásamt Fraser og kannski fleirum erum að spá í svolitlu.  Geggjað spennt ef úr verður.  Nánari fregnir seinna ef þetta kemst af umræðustiginu...
    February 13

    En sú sæla að hafa það heimilislegt...

    Sjaldan eða aldrei hefur ástandið í herberginu mínu verið svona slæmt.  Sökum þess að þvottavélin var heila og hálfa eilífð að þvo í morgun svo ég lenti í tímaskorti þar sem ég þurfti að fara á labbafund, í tíma og á fund með JBS og svo var því líka að kenna að allir þurrkararnir voru uppteknir... jæja þá er ég með blautann þvott út um allt herbergið.  Já og svo er sjódót og erfðafræðidót út um allt þar sem ég nenni ekki að koma mér upp kerfi til að ganga frá í.  Já og svo er bara allt fullt af óútskýrðu drasli.  Alla vega er þetta frekar scary allt saman og það versta er að það er meira freistandi að lesa fyrir (H)ELP en að taka til (og þar sem ég á í erfiðleikum með að þola Umhverfi, lög og reglugerðir (ELP), þá er nú mikið sagt)....
    February 12

    Hæf eða heppin?

    GIS kortin mín virka án nokkurrar aðstoðar.  PCR-ið virkaði þ.a. nú þarf ég bara að hreinsa DNA-ið og senda það í raðgreiningu.  Kortin hans Andrew eru ekki að gera sig og hann fékk ekkert út úr PCR!!! Það var nú ekki alveg laust við að hann væri nett pirraður við mig, veit ekki alveg hvort það var meira þar sem ég hló svo mikið að honum (hann og Rodrigo eru alltaf að hlæja að mér því ég er klaufi) eða af því að ég er meira en nettur klaufi og tókst meira að segja henda túbu með DNA yfir hálfa stofuna, alveg óvart...það er ekki mér að kenna að það eru ekki til M hanskar bara L sem eru svo stórir að ég er í sífellu að festa þá í öllu.  Alla vega greyið Andrew sem er svo vandvirkur fékk ekkert út úr sínu á meðan að ég sem klúðraði nánast öllu tókst að fá fullkomin sýni.
    Annars var það frekar skoplegt að þar sem það voru engir fyrirlestrar í dag (forfallaður fyrirlesari) þá gátum við Claire ekki þrýst á gellurnar að koma í circuit og Rosy, Katy, Lindsay og Mau Mau sem allar ætluðu að mæta afboðuðu sig!  Hmmm... eitthvað verður að gera við þessu á fimmtudag, þýðir ekkert svona sko...