Frida님의 프로필Freknótt í fíling사진블로그리스트기타 도구 도움말

블로그


    2월 29일

    Freknan fer til Evrópu

    Jájájájá, bara stórtíðindi upp á nánast hvern dag hjá freknunni...
     
    fréttir dagsins eru nú hvorki meiri né minni en þær að Jeremy bauð mér til meginlands Evrópu með sér í apríl!!!  Viðurkenni nú reyndar að þetta verður ekki beint sumarfríðið í ár þar sem þetta verða tvær vikur af smá spendýra veiðum. En hey, ég fer til a.m.k. 4 ef ekki 5 landa (þ.m.t. Hollands, Þýskalands og Danmerkur), þ.a. hverjum er ekki sama.
    Fyndast við frétt dagsins:  við förum á bíl foreldra Jermey (sem er ekki yngri en 50) þar sem Jeremy tók hann af pabba sínum sem var orðinn hættulegur í umferðinni...
     
    ps.
    skráning fyrir póstkort er hafin... muna að setja inn land sem það á að vera frá... nenni sko ekki að senda öllum frá öllum löndum!
    2월 27일

    Skjálfandi á beinunum...

    Eftir frekar taugatrekkjandi dag (í taugatrekkjandi viku sem er enn ekki liðin), lagðist ég úrvinnaa á mig rósrauða eyra og hugsaði mér nú gott til glóðarinnar, nú skyldi sko hvílst fram til 7. En nei, ekki var eva lengi í paradís... haldiði ekki að mín hafi vaknað upp við vondan draum, og var sá draumur að það lék bara allt á reiðarskjálfi.  Fyrst hugsaði ég með mér að það hlyti nú bara að vera jarðskjálfti en svo náði skynsemin tökum á mér... ég er jú stödd í Jórvíkurskýri í Englandi sem er  nú ekki beint þekkt jarðskjálfasvæði.  Ákvað ég því að nú væri ég að verða endanlega geðveik, opnaði því gluggann (ekki spyrja mig af hverju) og lagðist á hitt eyrað og hélt áfram að sofa. 
    Þetta væri nú svo sem ekki í frásögu færandi nema hvað að það var nú bara alvöru jarðskjálfti sem gekk yfir svæðið í nótt!   En já...það kómískasta verður samt að vera viðbrögð breta við þessu öllu... spes þjóðflokkur...
     
    En annars er það helst í fréttum að það eru komin blóm á tré hérna... vorið er að koma!!!
    2월 25일

    Með netið

    Jæja, loksins reddaði Simon netinu þ.a. hver veit nema ég verði nú bara duglegri að blogga í framtíðinni. 
     
    Annars er aðal fréttin þessa dagana að eftir ekkert svo langan tíma verð ég orðin meðhöfundur að alvöru vísindagrein. Og mér er svo sama þó enginn eigi eftir að skilja um helminginn af henni...hún verður skyldulesning!!!