Frida's profileFreknótt í fílingPhotosBlogListsMore ![]() | Help |
|
March 30 VííííííííííííííííEr að fara til Dublin, er að fara til Dublin, er að fara til Dublin...
Að vísu ekki strax...
Að vísu ekki búin að kaupa flugmiða...
Að vísu ekki ákveðin hvort þetta verður sólarhringsferð, aðeins meira eða aðeins minna...
En ég er svooooo sannarlega að fara til Dublin og það verður æðislega mergjaðislega geggjað frábært
Já og by the by Bylgja kemur með þ.a. ég verð ekki ein eins og síðast á svipaðri uppákomu... tja nema eitthvað komi uppá eins og þegar ég ætlaði með síðasta tilvonandi uppákomu félaga...
Alla vega JEEEEEEYYYYYYY March 28 GráturThe down side:
The upside
The down side cont'
Úff...Er að bjástra við að skrifa innganginn að greininni minni (er víst betra að skrifa hann þar sem ég er búin með aðferðir og niðurstöður) og vá hvað þetta er ekki að ganga. Var að lesa yfir það sem komið er og þar segi ég meðal annars... þrátt fyrir að erfitt sé að sjá mun á kynjunum nema í kringum fengitímann þá er mikill munur á kynjunum þegar litið er til litningar þar sem kk eru með 3 kyn litninga (XY1Y2) á meðan kvk eru bara með tvo (XX). Já... einmitt... gáfulegt... það er nefninlega ekki almennt hægt að þekkja kynin í sundur þegar það er bara XY og XX ;0) ... hugsa að ég þurfi að reyna aðeins betur að orða þetta allt saman... March 27 VóóóóóóóEr búin að komast að því að það er eitt frábært við að vera sífellt niðurdreginn og með höfuðið ofan í bókum og greinum. Minnstu hlutir geta bara hreinlega kætt mann helling. Kom t.d. heim áðan eftir að hafa verið að berja hausnum við Rodrigo í 6 klst og ekki komast að niðurstöðu og viti menn við erum búin að fá nýja brauðrist í eldhúsið okkar!!!!!!!!!!! Jájá, hugsa líklega sumir, ný brauð rist, og hvað er svona merkilegt við það. Jú ég get sko sagt ykkur það. Gamla ristin var nú bara orðin ónýt og var bara svona lítil og venjulegt en þessi nýja... vóóóó. Hún er mögnuð. Það er pláss fyrir fjórar brauðsneiðar og maður þarf ekki lengur að vesenast við að skera tekökur í þrjá hluta til að koma þeim í heldur eru götin svo breið að það kemst hálf tekaka í!!! Já og svo er grind sem maður getur notað til að hita Crumpets. Gæti ekki verið betra... er ekkert smá ánægð ;0) March 26 Að veðra eða veðra ekki...Það er ekkert nema geggjað veður úti, stend mig að því að sitja og stara út um gluggann dreymin á svip en neeiiii ekki getur maður farið út í páska"fríinu" sínu maður er svoooo busy. Hengd þess í stað inni og bölsótast yfir andstyggilegasta forriti sem ég hef á ævinni kynnst (það er mikið sagt þar sem ég hef nú kynnst ónotendavænum forritum eins og R, C++, ArcInfo, MEGA og fleira í þeim dúr). Þetta $%$&$&% forrit heitir Arlequin og er barasta ekki að gera neitt fyrir mig. Er búin að eyða mörgum tímum í að reyna að gera gögnin mín þannig að þau fallið að forritinu og fæ alltaf error tja reyndar ekki alltaf núna seinast fékk ég upp opna... og svo ekkert meira.
Allavega er pirruð og langar út að leika í góða veðrinu aldrei að vita hversu lengi það staldrar við þar sem Bruce segir að skv veðurspá eigi að koma skipulagðar rigningaraðir annað hvort á morgun eða hinn... Klukk...Það var erfitt að sofna á réttum tíma í gærkvöldi enda réttur tími einni klukkustund til hliðar við það sem manni fannst hann ætti að vera. Breytti því ekki að ég hoppaði á fætur kl. 7 í morgun eins og aðra virka morgna til að fara að læra... merkilegt hvað maður er bundinn af klukkunni, fyrir tveimur dögum hefði þetta verið kl. 6 og mér hefði aldrei dottið í hug að fara á fætur þá ;0) March 25 Tíminn hreinlega flýgur frá manniVaknaði í morgun, leit á klukkuna og var ekkert smá ánægð með sjálfan mig. Klukkan bara 8:30 og ég bara nokkuð hress. Dreif mig á fætur, fékk mér morgunmat og skellti mér svo í að setja í svo sem eina þvottavél. Eftir það kveikti ég á tölvunni og viti menn var þá klukkan ekki bara orðin 10!!!! Þetta fannst mér nú frekar undarlegt þar sem ég er nú ekki vön að vera 1.5 tíma að gera "allt" þetta. Við nánari umhugsun áttaði ég mig svo á því að það er nú víst barasta komið sumar og ég því búin að týna heilli klukkustund. Alltaf gott að vera á undan sinni samtíð ;0)
March 22 Jájá... það er bara þannig...Ekki veit ég hvernig ég fór að því en mér tókst að verða mér út um skilafrest á greininni minni og er hann eftir viku! Finnst það frekar merkilegt afrek miðað við það að ég sagði við Jeremy að ég gæti náttúrulega ekki byrjað að greina afganginn af sýnunum mínum fyrr en á morgun og byggist ekki við að geta klárað greininguna fyrr en í byrjun næstu viku... þá fór hann að spyrja um hvernig væri með skrifin mín og ég sagði að væri að vonast til að reyna að klára þau um þar næstu helgi... það næsta sem ég vissi var að ég á að skila henni inn til hans á föstudaginn eftir viku og á fund með honum á mánudaginn eftir rúma vikur til að ræða um hana!!!!!!!!!!!!!!
Jamm, þarf sem sagt að klára greininguna mína og skrifa heila vísindagrein á viku, EKKERT MÁL
Annars var ég með fyrirlestur fyrir labbafólkið í dag. Jeremy hafði sagt við mig á fundi á þriðjudag að hann vildi að ég mundi útskýra vandlega hvernig litningabreytinga yllu mismun á stofnum Evrópusnjáldrunnar (tegundin mín ;0), það væri frekar flókið og hann hlakkaði til að sjá hvernig ég mundi snúa mér út úr því... Úff... ég fékk náttúrulega sjokk þar sem verkefnið mitt byggist ekki á litningum heldur hvatberaerfðum fyrir utan að ég hafði nú ekki áttað mig á neinu flóknu í sambandi við litningana og var því nokkuð viss um að ég hafði misskilið eitthvað eða lesið fram hjá einhverju. Ekki leið mér nú betur þegar ég var að útskýra þetta allt saman og leit á færeysku stelpurnar sem eru í heimsókn á labbanum og þær voru eitt stórt spurningamerki í framan. Jæja, Jeremy vildi nú ekki meina annað en mér hefði nú samt sem áður tekist mun betur upp en hann hafði þorað að vona og virtist bara skilja þetta frekar vel... veit samt ekki alveg hvort hann var að djóka í mér og heldur að ég sé algjör illi eða hvað, í það minnsta var Andrew á 45 mínútna fundi með honum eftir fyrirlesturinn en ég 20 mínútna... er mér ekki viðbjargandi og því er til lítils að eyða í mig tíma... eða er ég algjör snillagoggur sem þarf ekki meiri tíma en þetta?????????? March 20 NetworkingÚff... er búin að sitja á labbanum að vinna úr niðurstöðunum mínum þar sem ég á víst að halda fyrirlestur á fimmtudaginn fyrir Jeremy og rannsóknarhópinn... sem sagt fulla stofu af fólki sem veit um hvað ég er að tala! Er ekki enn komin með allt úr raðgreiningu en meirhlutann og hef þannig bara unnið með það. Býst ekki við miklum breytingum þegar ég fæ afganginn af gögnunum og er því nokkuð örugg með niðurstöður mínar. Bara til að það sé á hreinu þá er sem sagt ekki hægt að nota Cytb hvarberagenið til að greina milli stofna snjáldurmúsa, þ.a. ef þið ætluðuð það, ekki reyna, notið bara litninga þó það sé dýrara og tímafrekara!
Annars er brandari dagsins Rosy í hláturkasti í talhólfinu... náði varla að stynja upp því sem hún ætlaði að segja þar sem hún var enn í krampa eftir að hafa hlustað á skilaboðin mín... á íslensku ;0) March 18 NEI!!!!!!!!!!Nei, nei, nei... þetta gengur sko alls ekki! Það er haglél úti!!!
Ok, það er búið að vera ögn kaldara undafarna daga en hefur verið og sífellt austan rok (beint á gluggann minn) og hefur það leitt til þess að kvefið mitt tók sig upp af fullum krafti. Þetta er nú samt ekki einu sinni fyndið, er bara fegin að vera inni með tómatsúpu og hálsmola en ekki úti með blessuðum blómunum og laufunum sem eru á fullu að springa út á trjánum =0( Jahérna hér...Ekki keppir Eiki Hauks við rokkara frá UK þar sem hann vann ekki. Það var víst hljómsveitin Scooch sem vann merkilegt nokk þegar úrslitin voru tilkynnt þá kynntu kynnarnir sitthvorn sigurvegarann ;0) frekar leiðinlegt fyrir hina sem var lesin upp en vann ekki í alvöru.
En allavega fyrir þá sem ekki eru búnir að fatta það þá nenni ég ekki að vera að læra, ætti samt að vera að gera það sérstaklega með tilliti til þess að Jeremy sendi mér emil fyrir 11!!!!!!!!!! Er ekki pottþétt sunnudagur? March 17 Hver tekur þátt í Eurovision?Jájá, bara Eurovision líka í UK. Best að uppfræða almenning um stöðuna hérna fyrsta það er alltaf svo mikil spenna á klakanum... ;0)
Skv. veðbönkum er Justin Hawkins talinn líklegastur til að vera sendur til Helsinki!!! Jamm, ef nafnið hringir ekki bjöllum þá er þetta síðhærði skrýtni rokkarinn sem var söngvarinn í The Darkness. Annars eru fimm aðrir sem keppast um þetta og eru hinir Brian Harvey (var í East 17), Liz McLarnon (var í Atomic Kitten, þú veist Bylgja... the tide is high hehe), Big Brovaz (hip hop hópur), Scooch (pop kvartett) og Cyndi (einhver ný).
Jájá, rosa spenna (eða ekki) og verður kosið um þetta í sjónvarpinu, úúúúúúú........
Finnst samt alveg mega bömmer að það skildi ekkert verða úr því að Morrisey tæki þátt, það hefði sko verið eitthvað til að tala um. March 16 Síðasti fyrirlesturinn...Í dag var síðasti fyrirlesturinn á þessari önn... merkir að ég þarf aldrei aftur í tíma hjá Julie og Callum og gæti bara ekki verið ánægðari með það. Fíla því miður Julie ekki og þegar hún stendur uppi við töflu, veifar höndunum og nánast fer yfir um þar sem hún skilur ekki myndirnar en þær eru mikilvægar og Callum sagði henni að sýna okkur þær, fer um mig vibba hrollur. Eins er það mjög traustvekjandi að hún virðist ekki hafa gert neitt án Callum, engar greinar sem hún hefur skrifað án hans, hann virðist gera fyrirlestrana hennar, þegar hann er með fyrirlestra þá kemur hún og hlustar (getur líklega ekki verið að vinna á meðan þar sem hann er ekki þar) o.s.frv. ok ég veit þau eru gift en varla deila þau heila (ef svo þá væntalega hans). Fíla ekki Callum þar sem hann er rosalegur besservisser sem finnst ekkert að því að vitna fram og aftur í Greenpeace og vinna alls kyns bæklinga fyrir þá (vona bara hans vegna að hann hafi ekki átt þátt í þeim fjölda skipta þar sem GP hefur haldið fram fölskum staðreyndum sem hafa síðar haft verri áhrif á umhverfið eins og t.d í Brent Spar málinu) já og svo fannst mér líka ekki sniðugt þegar honum tókst að eyða heilum spurningatíma í að vera sífellt að minnast á íslensk sjávarútvegsmál og fannst ekki við hæfi að biðja mig afsökunar á að taka mig fyrir nema bara undir fjögur augu jafnvel þó hann hafi dregið mig persónulega út úr hóp fólkst til að svara fyrir heila þjóð...
En alla vega nú taka við 5 erfiðar vikur þar sem eru sem betur fer engir fyrirlestrar heldur hið svokallaða páska"frí". Fyrstu vikuna af "fríinu" mínu kem ég til með að eyða á labbanum við að greina gögnin mín já og svo þarf ég að kynna niðurstöður mínar fyrir rannsóknarhópnum á fimmtudaginn! Afganginn af "fríinu" þarf ég svo að nota í að skrifa greinina mína, styrkumsókn sem er verkefnið fyrir verndunarlíffræði og skipulagstillögu sem er verkefnið fyrir "Wildlife Management". Er geggjað spennt fyrir þessu öllu (eða þannig) og get varla beðið eftir fyrirstu vikunni eftir páska"frí" þegar ég þarf að skila þessu öllu og halda fyrirlestur um rannsóknina mína!!!!!!!!!!!!!!! March 15 Að villast í úgglöndumÍ dag var fundur með Olivier þar sem hann var að fara yfir Mallorka ferðina okkar og hvað við kæmum til með að gera og hvernig þetta yrði nú allt saman. Við förum sem sagt 28. apríl (laugardagur) og komum aftur 12 maí (líka laugardagur) og gerum umhverfismat og einstaklingsrannsókn. Fyndnast var samt að það sem mestur spenningur er fyrir er að við getum spjallað alla nóttina þar sem við verðum 4-6 í herbergi í kojum, sýnir bara hvað við erum þroskuð ;0)
Annars er strax búið að vara Olivier við því að hann þurfi að passa sérstaklega upp á mig þar sem ég eigi pottþétt eftir að týnast þarna... fannst það algjör óþarfi, nenni ekki að vera með franskan/belgískan gaur á hælunum á mér allan tíman, ég meina það er ekki eins og ég sé eitthvað utan við mig og hætt við að gleyma stund... og stað =0p
Annars held ég að ég eigi nú ekki eftir að lenda í miklum vandræðum með að rata, við fengum meira að segja kennslu í notkun áttavita, korta og GPA tækja í dag og ég villtist ekkert, við fórum alveg 15 skref út fyrir líffræðina en þar sem mér hefur tekist að villast inni í líffræðinni þá fannst mér það bara frekar gott hjá mér... March 14 mér tókst það!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég er hamingjusöm í dag........
Fékk niðurstöðurnar úr raðgreiningunni í dag og viti menn þetta bara virkaði allt saman og það sem merkilegra er ÖLL sýnin eru af snjáldurmúsa DNA. Sem sagt, þrátt fyrir nokkrar heiðarlega tilraunir þá tókst mér ekki að klúðra þessu og ekki magna og raðgreina mitt eigið DNA. Held að Jeremy hafi verið frekar létt í það minnsta var hann ekkert smá brosmildur í dag þegar ég var að tilkynna honum góðu tíðindin... =0)
Annars var ég að taka saman síðustu sýnin til að senda og þar sem lauk sloppahluta verkefnisins. Finnst ekkert smá fyndið að þrátt fyrir að hafa lent í þvílíka veseninu og eytt rúmri viku í að prófa mig áfram með aðferðir þá náði ég samt að klára sloppahlutann á undan Andrew. Núna er bara að bíða þangað til í næstu viku þegar Rodrigo kemur aftur og fara þá að tékka á að greina þetta eitthvað, búa til ættartré og fleira skemmtilegt!!!
Gleði gleði gleði, gleði líf mitt er.... March 12 Nýtt!!!Í dag, á sjálfan hallardaginn, kom út "nýtt" lag með R.E.M. og meira að segja BB líka!!!
Ha, hugsa líklega flestir með sér (nema þeir sem eru með puttann á púlsinum) nýtt lag og með BB...? Og þeir sem eru ekki einu sinni farnir í stúdíó til að taka upp efni á nýju plötuna (gerist á næstu mánuðum bíðið róleg, eru þegar komnir langt með lagasmíðarnar) og BB er sko alls ekki með á plötunni þar sem hann er jú hættur í bandinu og ekkert á leið til baka.
En ekki örvænta, ég get útskýrt þetta allt fyrir ykkur.
"Nýja" lagið sem kom út í dag (bara á netinu ennþá) er lagið #9 dream eftir John Lennon og er fyrsta smá"skífan" af væntanlegum diski sem gefinn verður út í Júní og kemur til með að vera til styrktar Amnesty í Darfur. Á diskinum verða lög eftir Lennon í flutningi ýmissa listamanna þar á meðal Green Day, Christina Aguilera, Jack Johnson, Snow Patrol, Corinne Bailey Rae, Regina Spektor og The Postal Service. Jamm, gripurinn kemur út 12. júní þ.a. verið viðbúin.
Annars er málið með BB að hann greip í kjuðana af þessu tilefni í sept þegar þetta var tekið upp, var í Athenu GA að spila á giggi með gamla genginu þegar það var verið að heiðra þá þ.a. af hverju ekki. Er í fyrsta sinn sem hann hefur verið með þeim í stúdíói síðan hann hætti 1997!!!
En bara til að fyrirbyggja misskilning þá er hann ekkert á leiðinni í bandið aftur, hinir eru rosa sáttir bara þrír og BB er rosa sáttur að vera bóndi einhversstaðar uppi í sveit í BNA.
Geggjað merkó... March 11 Frægðarhöll rokksinsVar að setja saman lagalistann fyrir vikuna áðan (felst í því oftast að láta Media Playerinn velja random lög sem ég mundi líklega annars aldrei hlusta á saman) þegar ég fattaði allt í einu að það er í þessari viku sem líklega uppáhalds hljómsveitin mín og ein af uppáhaldssöngkonunum mínum verða heiðruð af frægðarhöllinni... Ákvað því að hlusta ekki á neitt annað þessa vikuna, enda alveg við hæfi og hef meira að segja sett inn eitt af "meistarastykkjunum" inn hér til hliðar sem vídeó... hehehehe, ekkert nema ótrúlega fyndið og krúttlegt. En allaveg go R.E.M og Patti Smith!!! Heitt...Skrapp áðan í Sainsbury's til að versla. Það væri nú ekki í frásögu færandi nema að ég ákvað að vera frekar klár og fara bara í stuttermabol og jakka þar sem ég hafði á tilfinningunni að það væri ekkert of kalt. Nú jæja, það var svo sem ekkert kalt en ég komst á því að jakkinn minn er nú bara við það að vera of þykkur og þá sérstaklega þegar maður er með bakpoka, í það minnsta var ég við það að kafna úr hita. Er ekki örugglega svipaður fílingur á klakanum... ;0) March 10 Geggjað duglegEr búin að vera inni í herbergi í allan dag að "læra". Merkilegt nokk, það er samt frekar lítið búið að bætast á listann yfir það sem búið er að lesa og frekar lítið búið að bætast við það sem ég hef skrifað. Hins vegar er herbergið mitt hreint til tilbreytingar og ýmsar nýjungar komnar inn á bloggir, já og svo er ég rosalega vel að mér allt í einu í heimsmálunum. Veit ekki hvernig stendur á þessu... |
|
|