Frida's profileFreknótt í fílingPhotosBlogListsMore ![]() | Help |
|
March 29 R.E.M. RAHSkrapp til London á mánudaginn til að fara á R.E.M. tónleika í the Royal Albert Hall, eins og reyndar flestir ættu nú að vita (ekki búin að hafa of lágt um þetta)...
Nú jæja, ódýrasta lestarfarið var snemma um morguninn þ.a. ég var komin í bæinn eitthvað fyrir hádegið og ákvað því að skreppa í the Institute of Contemporary Arts þar sem tónleikarnir voru nú afmælistónleikar fyrir þá ágætis stofnun og af einhverjum undarlegum ástæðum hafið ég nú bara aldrei komið þangað. Jæja, þetta hefði nú ekki átt að vera til frásögu færandi nema hvað að þegar ég kom þangað þá stóð eitthvað um R.E.M. mynd á veggnum fyrir aftann manninn í afgreiðslunni og ég spurði nöttlega frekar út í það. Var það þá ekki bara svoleiðis að þá í hádeginu var verið að fara að frumsýna 2 heimildamyndir sem unnar voru með R.E.M. á meðan á upptökum nýju plötunnar stóð. Einhvern veginn vildi það svo þannig til að það voru einhverjir sem ekki náðu í miðana sína og fékk ég því miða á þennan merkisviðburð og það frítt í þokkabót (ó já og það var verið að heimsfrumflytja plötuna á meðan ég beið eftir að fara inn...). Þegar ég fór svo inn í sýningarsalinn sem var nú bara frekar lítill og kósý þá voru nánast öll sæti upptekin og var mér vísað til endasætis fyrir miðjum salnum. Fyrir framan mig var þá þegar sestur maður, sem já enn á ný væri almennt ekki til frásögu færandi, en vakti nú hjá mér frekar mikla athygli (á minn niðurbælda hátt) alveg þangað til að annar maður gekk inn, settist fyrir framan hann (sem sagt svona 1.5 m frá mér), snéri sér að honum og fór að spjalla. Jamm og þarna sat ég og endurtók í sífellu... það er ekki fallegt að glápa á fólk, það er ekki fallegt að glápa á fólk... það er ekki fallegt að glápa á fólk...en fokk MICHAEL STIPE SITUR 1.5 M FRÁ MÉR OG ER AÐ TALA VIÐ ANTON KORBJIN SEM ER Í SÆTINU FYRIR FRAMAN MIG!!!! Ó já... og þið getið rétt ímyndað ykkur hversu litla einbeitingu ég hafði til að horfa á myndina... en vitiði hvað, skallinn á Michael Stipe glampar rosa flott þegar ljós af sýingarvél skellur á honum... =0)
En allavega... er enn hálf stjörnuslegin yfir þessu, en hef þó komist að því að ég er greinilega ekki gerð til þess að vera geiðveikur aðdáandi því ekki dátt mér í hug að fara að trufla MS nokkuð þó svo að hann væri það nálægt mér að ég hefði geta snert nánast fullkominn skallann!
Og að endingu... tónleikarnir voru náttúrulega ekkert nema æðislegir... diskurinn kemur út á mánudaginn, allir út í búð...!
March 21 LOLOk, það finnst örugglega engum öðrum þetta fyndið en vá hvað ég hló... um að gera fyrir þessa gaura að viðurkenna kynhneigð sína March 19 Meistari Fríða...Jæja góðir hálsar, loksins kom að því að ég útskrifaðist með þessa blessuðu mastersgráðu. Fékk sem sagt að vera í skikkju (ekkert í líkingu við supermann) og með alvöru hatt með dúski. Ójá, set inn fleiri myndir síðar, klukkan er margt og ég þarf að fara að kenna kl. 8 í fyrramálið... over and out, Fr.
Ps. átti ekki inneign í síðmann í gær, þarf að fylla á hann... sorry... March 18 157kr!!!!!!!!!!!Krapp!!!
Endilega einhver segja mér af hverju við erum að reyna að halda uppi einhverju sér íslensku hagkerfi takk! March 15 Daginn í dag, daginn í dag...Var næstum vakin kl 8.15 í morgun við það að sendill kom með miðann minn fyrir R.E.M. í næstu viku (jey), ekki það þurfti svo sem að vakna þar sem planið fyrir daginn var að finna skyrtu sem væri hægt að hneppa upp í háls. Jæja, nú er klukkan að verða fjögur og engin skyrta fundin og ég sem þarf að nota svoleiðis undir kuflinn (eða hvað sem þetta heitir) á útskriftinni á miðvikudaginn!!! Hmmmm... eitthvað í líkingu við kraftaverk verður nú líklegast að eiga sér stað næsta sólarhringinn því ég þarf að fara á labbann á morgun til að einangra DNA úr trjám og því ekki mikill tími í eitthvað skyrtustúss... March 09 Þegar kötturinn er úti skreppa mýsnar á ströndinaVið komumst að því á föstudaginn að JBS kann sko sannarlega að velja sér fólk. Ekki nóg með að hann virðist velja einstaklinga sem hann getur tekið með sér út um allt og notað sem túlka (Rodrigo spænsku, Ellie frönsku) heldur velur hann sér greinilega fólk sem er einstaklega samviskusamt og duglegt... já, sem sagt JBS og frú (sem er með labbann sem við deilum svæði með) eru sem sagt búin að vera í BNA alla vikuna að kaupa sér hús og viti menn auðvita notuðum við Ellie og Rodrigo tækifærið og skelltum okkur til Scarsborough um hádegi á föstudaginn!!! Hver nennir svo sem að hanga á labbanum þegar það er enginn til að fylgjast með manni og það er sól úti, tja allir sem eru á labbanum hjá konu JBS reyndar, en hey... En já, við sem sagt fórum á ströndina, fengum okkur fisk og franskar, fórum í 2 pensa spilakassa og skoðuðum kastala... miklu skemmtilegra en PCR.
Annað í litlum fréttum er að ég fór á hústónleika með Debbie og Rosy í gærkvöldi. Ekkert smá sniðugt, hjónin sem búa þarna fá til sín eina til tvær hljómsveitir í mánuði og selja síðan svona 20-30 miða að þessum tónleikum í stofunni sinni. Er í annað skiptið sem við förum, miklu skemmtilegra en að fara á einhvern pöbb til að reyna að hlusta á tónlist, en frekar ógnvekjandi fyrir þá sem eru að spila þar sem þeir sitja liggur við með áhorfendurna í fanginu.
En já, annars ekki mikið í fréttum... |
|
|