Frida님의 프로필Freknótt í fíling사진블로그리스트기타 ![]() | 도움말 |
|
4월 26일 Púff...Búin með einstaklingsverkefnið mitt. Fyrirlesturinn var í dag og gekk bara nokkuð vel að sögn, veit ekkert um það sjálf var frekar lítið að taka eftir því sem ég sagði. Já allavega þreytt en búin. Þarf núna bara að klára Wildlife management og fara svo til Mallorka =0) 4월 25일 Frábær frænka maður...;0)Vúhú... heyrði í glænýja frænda mínum áðan... jamm á nefninlega glænýjann frænda. Væri nú reyndar ekki í frásögu færandi ef ekki væri fyrir það að Helga á hann!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Jamm er sem sagt orðin skjalfest frábær frænka (great Auntie) og var ég nú frekar frábær fyrir. Ójá og foreldraeiningin bara orðin langamma og langafi... vá og Hulda syss orðin amma!!! úff...
En alla vega til hamingju með strákinn Helga... já og Guðjón líka
Ónei ósveiFór að hitta Olivier áðan til að ná í dót fyrir laugardaginn og fékk í leiðinni að vita hverjir verða markerar á fyrirlestrinum mínum á morgun. Sko já, ég verð sem sagt síðust af öllum, verð strax á eftir Andrew sem er með mjög svipað efni og akkúrat þeir tveir sem ég var að vonast til að væru hvorugur verða báðir að markera þ.e. Peter Mayhew og Geoff Oxford, gæti maður verið heppnari :0( Allt að gerast...!!!!!!!Já þið lásuð rétt... það er bara að koma að þessu!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Baka vandræði...Eftir dag mikilla fyrirheita en lítilla framkvæmda var haldið til Rosy (þar sem Claire dvelur nú fram að lokum prófa) og skellt í eina skúffuköku. Að vísu átti Rosy ekki skúffu þ.a. þetta varð hringlótt kaka og boy oh boy það hefur rosalega áhrif á sálina. Annars lukkaðist hún bara frekar vel og var fín sem eftirréttur á eftir fajitasinu. Annars þurfti greyið Fraser að sitja undir þvílíku skólatali að við eiginlega dauðvorkenndum honum en ég meina.. höfðum ekki hist allar þrjár síðan í síðasta mánuði!!! Þarf annars að hætta þessu og pota rafrænt í Claire, maður verður nú að svara fyrir sig... merkilegt þetta fólk alltaf verið að pota í mann, ekki gott ;0) 4월 24일 Á stefnumót ;0)Vildi að þetta væri meira spennó eða jafnvel jafn spennó og það hljómar. Er nú ekkert merkilegra en það að hann Mark "vinur minn" sendi mér emil í dag og eftir símtal í kjölfar þess þá eigum við stefnumót á föstudaginn... ennþá fyndnara að ég er að fara á skrifstofuna hans sem er á the mount (hehehehe.. geggjað fyndið). Jájá... æðipæði... 4월 23일 2/2Krabbi: Þú ert í hlutverki sjálfs þíns í glænýrri sápuóperu. Dularfullir sjúkdómar herja á meðleikara. Lækkaðu niðri í vellulegri tónlistinni og farðu beint í ástaratriðið í kvöld.
I wished.
Í fréttum er það helst að ég skilaði ICB og greininni í dag. Við Rosy náðum líka að afstýra hörmungum þegar við hittumst öll óvænt fyrir utan Wentworth í hádeginu þar sem rætt var um skilin og kom í ljós að Bai hélt að við ættum að skila á föstudag! Sem betur fer var hann nánast búinn þ.a. vonandi hefur þetta reddast. Asnó samt að við fáum engann áminningar póst um þetta, erum búin að vera í 5 viknar "fríi" og hjá mér persónulega búinn að vera laugardagurinn síðast liðnar 3 vikur (finnst maður eigi að vera í fríi en er það ekki og nennir þess vegna ekkert að gera nema stara út um gluggann). Og ekki var Bai sá eini sem ekki var með þetta á hreinu því þegar Rosy var að tala við James á föstudaginn þá var hann með það sama í kollinum, sem betur fer var það á föstudaginn því hann átti enn langt í land.
Annars er Claire kominn í bæinn aftur, kom í dag frá London og var bara með smá strengi eftir að hafa hlaupið 42km í gær!!! Ójá... ég sem nenni varla að læra og hún sem tekur þátt í Londonar maraþoninu... humm... ætti kannski að fara að gera eitthvað annað en að sniglast um á netinu... 4월 22일 TrönuberjasafiEr svona að leggja lokahöndina á skýrsluna fyrir einstaklingsverkefni. Aðeins áhyggjufull út af þessu öllu... gildir helling og svo er auka álag þar sem Jeremy er búinn að lesa þetta áður og býst við að ég hafi nú fínpússað þetta eitthvað, veit ekki... kemur allt sama í ljós hvernig þetta verður. Er svo líka með smá áhyggjur yfir því hver kemur til með að verða hinn aðilinn sem fer yfir þetta. Einhvern veginn kemur Geoff Oxford upp í hugann þar sem hann er "hinn" visterfðafræðingurinn á staðnum, en hann og Jeremy eru bara svoooo vondir saman í einkunnagjöfum. Úff... vildi að það væri umhverfiskennari sem væri að gefa mér einkunn, veit ekki af hverju en þeir eru ekki alveg jafn harðir í einkunnagjöfum og líffræðingarnir.
Er líka að fara að skila ICB verkefninu á morgun... hugsa að ég lesi nú bara yfir það í fyrramálið. Já það er gaman að þessu...
Annars mundi ég loksins eftir því að hlaupa í costcutter áðan á meðan búllan var opin og kaupa trönuberjasafa. Er búin að fá þvílíka löngun í svoleiðis á hverju kvöldi undanfarna daga en þar sem önnin byrjar ekki fyrr en á morgun þá hefur costcutter loka kl. 5 alltaf!!! en allavega, ahhhh gott 4월 21일 dúdírúddídey...Jæja já... bara alveg að koma að þessu... eftir viku verð ég á Mallorka og búin að skila inn 3 verkefnum og halda 1 fyrirlestur. Ekkert af þessu er samt sem áður tilbúið! Held engri einbeitingu og er á mótþróaskeiði sem felst í því að ÉG VIL EKKI!!! Er samt betur sett en sumir, í gær þegar ég talaði við Andrew var hann ekki byrjður á ICB verkefninu og átti samt eftir að klára greinina fyrir einstaklingsrannsóknina. Hann var ekki búin með hana heldur í kvöld þegar ég fékk emil frá honum þar sem hann hafði ekki hugmynd um ákveðinn hlut í greiningunni sinni og sendi því út neyðarkall til mín (fannst það frekar fyndið, gat reyndar svarað honum, en fyndið samt að búast við því að ég viti eitthvað svona).
Já og svo var ég að "spjalla" við Andy á "andlitsbókinni" og hann sat sveittur við að reyna að klára sitt verkefni og svona mætti lengi telja. Annars er ég eiginlega búin með bæði greinina og ICB, þarf að pússa þetta allt til og bæta inn hlutum sem láta mig hljóma aðeins klárari en ég er, alltaf gott að reyna að blekkja kennarana ;0) 4월 20일 Íslenska og önnur mál...Þurfti að laga til kortin mín fyrir skýrsluna og fyrirlesturinn og fór því í tölvustofuna í Wentworth. Hitti þar fyrir Andrew sem tilkynnti mér það að hann hefði verið á fundi með Jeremy á miðvikudaginn (A fór heim snemma í páskafríinu og var því ekki í Jeremy stressi þá) og Jeremy hafði víst sagt honum að hann vildi fá labbabækurnar okkar! Ég varð náttúrulega hissa og svolítið smeyk og ákvað að senda Jeremy emil svona til að tékka á hvernig hlutirnir stæðu. Jæja er þá ekki Jeremy bara svona rosa spenntur fyrir því að halda fund með okkur mánudaginn eftir að við komum frá Mallorka (14.maí) og fá þá hjá okkur labbabækurnar.
Ójá... veit ekki alveg hvernig stendur á því en ég skrifaði meiri hlutann af krafsinu í labbabókina mína á íslensku!!! Ég meina, ég þurfti að kaupa mér bók fyrir þetta og í þessari bók eru allar niðustöðurnar mína... glósur úr heimildum og glósur af fundum. Og meiri hlutinn á íslensku því þrátt fyrir að ég sé farin að tala við sjálfan mig á ensku (og boy oh boy ég tala sko við sjálfan mig) þá dettur maður bara í það ójálfrátt að hugsa á íslensku stundum. Kannski líka svolítið í því að hey... veit ekki alveg hvernig ég á að stafsetja þetta orð, er ekki viss... best að skrifa það á íslensku og tékka svo á því þar sem ég þoli ekki að sjá síðar slæma stafsetningu á enskum orðum hjá mér...
En allavega þá sé ég fyrir mér að ég þurfi að rífa slatta úr bókinni minni og þýða hinn slattann! Have fun...
En annars var ég að kíkja í dagbókin mína og áttaði mig á að dagurinn þar sem greining og ICB verkefnið eiga að afhendast er á næstu síðu í bókinni...!!!!!!!!!!!!!!!! Úff... time flies when you're not having fun... 4월 18일 Póstdagurinn mikli...Ekki á hverjum degi sem maður fær 4 í póstinum...
Var ekkert smá glöð, fékk 3 póstkort frá kanarí og svo líka extrapóst frá sauðárkrók. Veit ekki hvað það er við póst, maður verður alltaf svo glaður eins og krakki á jólunum... eða er það kannski bara ég... 4월 16일 SNPHahahahahahahahaha....
Fattaði allt í einu að SNP (Single nucleotide polymorphism - lesist snip) og SNP (lesist stjórnmálaflokkurinn sem ætlar að losa skota undan oki englendinga) eru með sömu skamstöfun.
Fékk tilboð um að gera rannsókn á SNP í höfuðvígi SNP í Edinborg... hefði kannski tekið því en ekki rottu hegðunarrannsókninni ef ég hefði fattað þetta fyrr...
Hahahaha...
Sorry stundum dettur maður úr því að vera nörður í það að verða súpernörður... og svo er ég líka svo glöð með að vera komin með internet aftur eftir að það datt út í heilann sólarhring!!! 4월 15일 HeittLas um daginn að komandi sumar eigi að vera það heitasta sem "elstu menn muna". Veit ekki alveg hvernig það á eftir að leggjast í mann... skrapp nefninlega út áðan og þrátt fyrir að hafa verið á bol var ég að kafna og langaði mest að rífa utan af mér buxurnar! Hmmm... þetta á allt saman eftir að verða mjög áhugavert. 4월 14일 TOP 10 REASONS THAT UNIVERSITY IS LIKE PRIMARY SCHOOL10. You cry for your mother.
9. You cross the street without looking for cars. 8. Snack time is a necessity. 7. You bundle up for the outdoors without caring what you look like (because everyone else looks as stupid as you do). 6. You stay at home and play games with your friends. 5. You wear your backpack on both shoulders. 4. You wear big mittens. 3. Playing in the snow is a legitimate activity. 2. You take naps. 1. You look forward to cheese toasties. ohhhh.... the joy of facebook 4월 13일 Djö... verð víst að hætta við að gera byltingu í þinginuFékk sent áðan heilbrigðis og öryggisskjöl sem ég þarf að fylla út fyrir CSL (central science laboratories) fyrir sumarverkefnið mitt. Og OMG, ég verð að gera atferlisrannsókn á rottum og til þess að það gangi nú örugglega þá þarf ég að svara hversu há og þung ég sé, nánast hvort mig hafi klæjað óeðlilega oft í stóru tánna milli 13 og 15 þann 18 september 1995 og þar fram eftir götunum. Svo eru náttúrulega spurningarnar um hvort ég hafi nokkurn tíman tengst hryðjuverkum eða einhver sem ég þekki og hvort ég hafi einhvern tíman planað að gera byltingu gagnvart þinginu eða drottningunni og þar fram eftir götunum... er að hugsa um að skrifa að ég hafi verið stoppuð af löggunni þar sem ég var að hjóla á göngugötu, hugsa að það gæti skipt máli. 4월 12일 Hinn langi armur laganna...Skrapp í bæinn í dag með Rosy (ég veit... virkur dagur, á að vera að vinna). Hún þurfti að kaupa afmælisgjöf handa mömmu sinni og við ákváðum að skella okkur saman... á hjólum. Ójá, þið lásuð rétt, Fríða á hjóli í umferðinni. Mér tókst að komast til Rosy stóráfallalaust, enda stutt að fara og lítið af götum á leiðinni. Þaðan var ferðinni heitið "beint" í miðbæinn og merkilegt nokk ég var ekki keyrð niður af brjáluðum breskum ökuníðingum sem keyra vitlausu meginn á götunni.
Þegar í bæinn var komið ætluðum við að hjóla í gegnum miðbæinn til að komast í Borders (bókabúð) í hinum enda miðbæjarins en þá tók nú ekki neitt rosalega gott við. Ó nei haldiði ekki að það hafi komið lögga hlaupandi á eftir okkur!!! Löggumanni stoppaði okkur og skammaði fyrir að hjóla á göngugötu... ég átti erfitt með að halda andlitinu á meðan að maðurinn var að tala við okkur og sprakk úr hlátri um leið og hann snéri sér við... múhaha... við vorum stoppaðar af löggunni... Rosy fannst þetta líka frekar fyndið en ekki fyrr en ég var búin að lofa að segja Claire ekki (við vitum báðar að ég stend ekki við það)... og Rosy sem var búinn að tala svo mikið um hvað það væri lítið mál að komast allra sinna ferða hér á hjóli.
Jæja en nóg af hjólum. Rosy keypti bók handa mömmu sinni, ég hefði nú hugsanlega keypt líka svona handa minni mömmu ef ekki væri fyrir það að blessuð bókin var á ensku. En ég meina hver getur staðist garðyrkjubók eftir Kalla prins. Komst nú frekar nálægt því að móðga bretann hana Rosy þegar ég spurði í sárasta sakleysi hvort maðurinn stundaði sjálfur garðyrku eða hvort hann horfði bara á aðra gera þetta fyrir hann... já og í framhaldinu hvort hann hefði virkilega skrifað þetta sjálfur!
En allavega góð bæjarferð eyddum að vísu 2 klst af deginum þar sem við þurftum náttúrulega að kaupa okkur ís og borða með tei... svona til að safna kröftum fyrir meiri lærdóm... 4월 11일 Sól sól skín á migÚff hvað ég verð alltaf nett pirruð um þetta leiti dags. Sólin skín eins og asni inn um gluggann minn, ég sé varla á tölvuna... sé reyndar varla út úr augum en samt skal maður sitja og reyna að einbeita sér að lærdómnum. Ekki getur maður samvisku sinnar vegna dregið fyrir gluggann þar sem maður fer nú ekki að loka á blessaða sólina og ekki fer maður út til að njóta hennar þar sem maður hefur margt betra að gera.
Held ég sé loksins búin að ákveða um hvað ég ætla að skrifa í verndunarlíffræði, jamm var sem sagt að hugsa um það þegar ég var að reyna að skrifa skipulagstillöguna fyrir Wildlife Management. Var líka að fara yfir tölurnar hennar Claire og emilast við Rosy. Veit ekki hvað ég gerir þegar ég þarf að fara að skrifa verndunarlíffræðina... hef ekkert nýtt verkefni til að hugsa um (nema ég hugsi um próf), Claire verður búin með einstaklingsverkefnið sitt og Rosy verður að þvælast með mömmu sinni...
Annars er msn-ið farið að hálfvirkar aftur eftir margra daga verkfall þar sem ný uppfærsla á vefkerfinu á svæðinu vill bara ekki meðtaka nýjustu uppfærsluna af messenger... ekki það hef ekkert opnað msn eftir að hafa fengið það í lag, en það er gott að vita af því að ég get það! 4월 10일 Skrýtið símtalFékk skrýtna upphringingu áðan. Þar var á hinum enda "línunnar" konsúllinn fyrir Ísland í Leeds sem ég var búin að senda emil til að tékka á að kjósa (geggjað duglegur og samviskusamur kjósandi). Hafði sent honum emil þar sem það er stutt að skreppa til Leeds og fyrst maður er í páskafríi þá hefði þetta nú verð í lagi... en er gaurinn ekki bara að fara að byrja í nýrri vinnu í York! Jamm, að vísu er hann bara nýbyrjaður í þessu þ.a. hann hafði ekkert í höndunum og þarf að fá atkvæðaseðla og þess háttar sent frá sendiráðinu í London (er greynilega sú eina sem hef haft samband við hann til þessa) og hann hafði ekki einu sinni hugmynd um hvenær það ætti að kjósa. En allavega ætlar gaurinn að hafa samband við sendiráðið og fá pappírana og hafa svo samband við mig og hitta mig í York til að ég geti kosið. Virkaði frekar næs gaur en þetta var samt í alvörunni frekar fyndið símtal, eins og alvöru Breti var hann að reyna að spjalla um ekki neitt bara af því að það er það sem er gert en virtist samt ekki hafa neinn tíma til þess þ.a. þetta var svona:
Já og ertu frá Reykjavík?, nei ég er reyndar frá Akureyri, Nú þarna norður frá... hef aldrei komið þangað hef samt oft farið til Íslands... en hérna já og svo þarf ég að fá atkæðaseðil og Blablabla... já og heyrðu hvað ertu að læra, tja ég er í MRES EEM, nújá, áhugavert og er það í háskólanum, Já,.. frábært og svo hef ég samband við sendiráði og spyr þá blablabla... en hérna hvað hefurðu verð lengi í York? Síðan í Október, Já gott, gott... og hérna ég hef samband við þig þegar þetta er komið.. við heyrumst þá...
Geggjað fyndið og ég átti mjög erfitt með að skella ekki uppúr vegna æðibunugangsins... ;0) Gott að það er ekki bara ég sem veð úr einu í annað ...Paolo NutiniEyddum löngum tíma í bílnum um helgina í það að reyna að muna nafnið á söngvaranum sem við vorum að hlusta á, er skoskur en hljómar eins og hann komi frá USA. Er 19 eða eitthvað en maður gæti haldið að hann væri á fertugsaldri þegar maður heyrir röddina hans og svo frv. Við gátum ómögulega munað það fyrr en við komum í York og tékkuðum á hulstrinum, fyndna er að Rosy á diskinn og hlustar oft á hann en mundi þetta engan veginn.
An alla vega gaurinn heitir Paolo Nutini og er bara nokkuð góður, minnir svolítið á John Legend, endilega tékkið á honum... |
|
|