Frida's profileFreknótt í fílingPhotosBlogListsMore ![]() | Help |
|
April 30 Er á leiðinni til Póllands!!!Jamm... eftir 5 vikur fer freknan til Póllands í viku til að fara í n.k. vist/verndunarlíffræði sumarskóla. Lofa engu með póstkort þar sem ég var að skoða dagskránna og hún er alla daga frá a.m.k. 8-21 (stundum fyrr fyrir fuglaskoðun og stundum seinna fyrir leðurblökuskoðun).
Úje.. gaman að vera freknótt í dag ;0) April 21 Freknan með th!?!Veit ekki alveg hversu ánægð ég er með að vera kominn aftur í hversdagsífið og þá sérstaklega þegar hversdagslífið felur í sér að þurfa skrifa svo sem eina vísindagrein!!! Ójá, JBS dró mig sem sagt á fund áðan og tilkynnti mér að nú væri kominn tími á að ég byrjaði að skrifa blessuðu músagreinina mína, skellti svo sem einum titli á blað fyrir mig og beingrind fyrir inngang og niðurstöður. Jamm... engin pressa, skrifa svo sem eina grein sem verður ekki bara með mínu nafni á heldur JBS, gaurs í Leeds sem er í fremstu röð á sviði mannerfðafræði og tja líklega músasérfræðings í Tyrklandi og svo á hún að vera tímamótaverk.
NB, svona virkar vísindaheimurinn, ég geri alla greininguna og skrifa greinina og fæ fyrir það að deila greininni með öllum sérfræðingunum... jamm, svona er að vera litli heilinn...
Annars datt JBS það allt í einu í hug í dag hvort hann mætti ekki bara fara að skrifa nafnið mitt með th í staðinn fyrir d, bara svona til að fólk mundi átta sig á að það á ekki að segja d í nafinu mínu heldur nokkurskonar th hljóð (hef verið að reyna að kenna honum að segja nafnið mitt svipað og Free the...). Mundi sem sagt fara úr Frida í Fritha!!!!!! Hmmm... sagði honum að jamm... það væri nú ekki á óskalistanum, en mundi nú samt taka þetta til athugunar... Fritha... veit ekki alveg... April 19 Að lokinni feltferðHalló halló, góðir hálsar..., mín þá bara loksins komin úr tveggja vikna Evróputúr með JBS!!! Einhvern vegin ekki enn kominn í tölvugír þ.a. það verður lítill pistill í þetta sinn... en meðal þess sem gerðist undanfarnar tvær vikur:
og að lokum... skematísk mynd af ferðinni okkar...
April 03 London - taka tvöSkrapp til London á þriðjudaginn í annað sinn sem sagt á viku. Í þetta sinn var þó tilgangurinn allt annar og efast ég stórlega um að margir fari í dagsferð til London til svipaðra verka og við Rodrigo í þetta skiptið. Málið sem sagt var að við áttum fund við einn af safnvörðunum í the Natural History Museum þar sem hann var að sýna okkur hvernig best væri að ná heilaleifum innan úr hauskúpum smárra spendýra!!! Ójá, ég lifi svo sannarlega öfundsverðu lífi... En svona í alvöru, come on ég fékk að fara bakvið í spendýra byggingunni í the Natural History Museum og sjá t.d. haustkúpur af mammút og þess háttar... þið vitið, eintökin sem sauðsvartur almúginn sér sko ekki!!!
Annars voru mastersnemarnir mínir með prufu fyrirlesturana sína í vikunni og vá hvað ég var stressuð fyrir þeirra hönd, er einmitt búin að sitja sveitt við að kenna þeim á hitt og þetta, hjálpa þeim að túlka gögnin sín og reyna eftir bestu getu að aðstoða þeim að breiða yfir hvað þær skilja ekki svo að sem fæstir átti sig á því að þær vita nú ekki alveg hvað er í gangi... En já býst við langri helgi við að hjálpa þeim við að klára og ganga svo frá öllu áður en ég fer á ferðalag með Jeremy!!!
Spennó... |
|
|