Frida님의 프로필Freknótt í fíling사진블로그리스트기타 도구 도움말

블로그


    5월 30일

    með svona meðalsítt hár... ;0)

    Datt allt í einu í hug áðan þegar James loksins ***** á facebook þegar hann var að segja mér frá þegar hann var hirtur upp af löggunni.  Þetta var á þeim tíma þegar hann var með hanakamb og því mikið hár á efri hluta höfuðsins en nánast ekkert á hliðunum.  Jæja, blessaður löggumanninn var að reyna að skrifa lýsingu á James greyinu og þegar kom að hárinu þá hristi hann víst höfuðið og eftir langann umhugsunartíma ákvað hann að taka bara meðatalið af þessari furðulegu greiðslu og skrifaði að James væri með meðalsítt hár ;0)  Hmmm... eins gott að J. týndist ekki, efast um að margir mundu setja meðalsítt hár í samband við gaur með hanakamb...
    5월 26일

    óþægilegt

    Setti inniskóna mína í þvott þar sem þeir voru miður aðlaðandi (annað en ég og pósterinn minn).  Virkaði ekki alveg eins vel og vonir stóðu til þar sem það hefur myndast hnúður inni í botninum á vinstri fætinum (þurfti að hugsa þetta alvarlega þar sem ég er með krosslagðar fætur og því í erfiðleikum með að munar hvor er hægri og hvor er vinstri).  Skulum orða það þannig að þetta er ekki alveg það besta í heimi. 
     
    Í fréttum er það samt helst að ég er mjög upptekin og einbeitt við lestur á umhverfislögfræði...
    5월 25일

    Mjög aðlaðandi

    Ekki ég, en takk fyrir að láta ykkur detta það fyrst í hug ;0)
     
    Neibb, var að fá út úr pósters verkefninu og þeir JBS og GO voru sammála um að pósterinn minn væri mjög aðlaðandi!!!!!!!!!!
    Á heildina litið voru þeir frekar jákvæðir, velti því fyrir mér hvort að Jeremy hafi örugglega ekki verið viðstaddur spurningastundina okkar þar sem hans mat á aðstæðunum var allt annað en mitt...
    5월 24일

    hvað heitir ljóði!!!!!!!!!!!

    Er að verða geðveik.
    Mundi allt í einu eftir ljóði áðan sem ég flutti í íslensku í MA á sínum tíma, ég man ekki hvað það heitir né eftir hvern það er og man heldur ekki alveg hvernig það var.  Hins vegar var þetta svooo gott ljóð að mig vantar að lesa það aftur... hjálp einhver sem kemst á bókasafn og getur fundið það fyrir mig, man bara að þetta var norrænn höfundur. Man að það var eitthvað á þessa vegu í því, einhvers staðar:
    Handtakið horngrýtis vorið,
    dragið fyrir sólina að vor döpru augu horfi ekki á hneyksli slíkt
    því þetta er bylting og ekkert annað en bylting
    Sólarlags skýin sveifla blóðrauðum fána...
     
    Úff... sakna ljóðabókanna minna... ekki það er að einbeita mér á fullu að umhverfislögfræði!

    Eins og allir hinir

    Búin að klára fyrsta prófið (stærðfræði fyrir vistfræði) og þá er "bara" umhverfislögfræðin og stjórnun verndarsvæða eftir. En allavega þurfti á netið og skellti mér á rúnt og endaði á að taka heilapróf eins og svo margir aðrir niðurstöðurnar komu mér nú reyndar til að brosa út í annað enda eru þær:
     
    Most left-brained people like you feel at ease in situations requiring verbal ability, attention to detail, and linear, analytical ability. Whether you know it or not, you are a much stronger written communicator than many, able to get your ideas across better than others.

    It's also likely that you are methodical and efficient at many things that you do. You could also be good at math, particularly algebra, which is based on very strict rules that make sense to your logical mind.
     
    Jamm sem sagt rosa góð í stærðfræði... Hmmmm við skulum nú sjá til með það...
     
    En allavega bis later
    5월 19일

    Upp og ofan

    Í gær var pósteradagurinn mikli. 
    JBS spurði mig margra spurninga sem ég reyndi eftir bestu getu að svara en viðurkenni fúslega að ég átti nú bara varla svar við sumum þeirra.  Vorum einmitt að tala um eftir þetta hversu skrýtið sé að fá ítarlegri spurningar við pósterakynninguna en við einstaklingsfyrirlestrana.  Við eyddum 3mánuðum í rannsóknir á einstaklingsverkefninu en póstersrannsóknin tók í mínutilfelli 4 nætur og 4 daga (með um 4 klst svefni á sólarhringi) hafði svo 3 daga til að reikna út niðurstöður, semja texta og hanna póster í forriti sem ég hafði aldrei notað áður. 
    Er aðeins áhyggjufull eftir gærdaginn, hélt ekki að þetta hefði verið alveg rosa slæmt en þegar JBS tók 2 sérstakar aukaferðir til að líta á pósterinn minn aftur eftir að hann var búinn að fara yfir þá póstera sem hann sá um þá hætti mér að lítast á blikuna.  Hmmmm akkuru þurfti mitt frekari skoðun en ekki pósterarnir þeirra Lucy, Sarah og Debbie?  Úfff...
     
    Annars ákváðum við að gleyma þessu í bili og ég Lucy, Lindsay og Sarah skelltum okkur beint niður í bæ og út að borða til að halda upp á afmælið hennar Lucy sem er í dag.  Hittum þar Hannah, Grace og Portugal og síðar Rosy og Claire og skemmtum okkur hið besta og þá sérstaklega í starwars leik með upprúlluðu pósterunum okkar niðri í miðbæ!  Já, gaman að því... og líka rosa gaman að læra fyrir próf.....................................
    5월 16일

    Gubb

    Er búin að skila plaggatinum mínu í prentun.  Er enn frekar mikið efins bæði um innihald og útlit.  Ekki alveg viss um að gul box á grænum bakgrunni séu að gera sig þegar þetta er orðið rúmlega 1m sinnum 75 cm.  Jæja lítið við því að gera úr því sem komið er þarf bara að brosa fallega til Jeremy og reyna að afvegaleiða hann... ætti ekki að vera erfitt miðað við fyrri reynslu...
    5월 15일

    Again and again...

    Ég held að þessir blessuðu kennarar séu með gps tæki á mér og hafi ákveðið að ég gæti bara hreinlega ekki sagt nei þegar þeir króa mig af og segja mér að mæta hér og þar og draga fólk með mér.  Var alveg vikulegur viðburður í vetur í sambandi við hádegisfyrirlestrana (sat þar ein þar sem það var alltaf einhver sem sagði mér að koma en hinir EEM-arnir hittu aldrei neinn á förnum vegi og gátu með hreina samvisku sleppt því að mæta).  Svipað gerðist í gær þar sem ég var ekki nógu fljót að koma mér undan Colin og hann fékk mig til að lofa að mæta á fund í morgun með einhverju fólki sem metur kúrsinn.  Merkilegt nokk, með því að snúa upp á nokkra handleggi fékk ég Lucy, Lindsay, Claire og Andrew til að mæta líka og þurfti því ekki að sitja ein í þetta skiptið enda eins gott þar sem við vorum spurð í köku um allt milli himins og jarðar.  Jæja, fengum amk fríann hádegismat og spjall með PJM, CDT, CMC og JKH.
     
    Annars er komið á hreint hverjir meta plaggatið mitt á föstudaginn (svona ef ég næ að klára það fyrir hádegi á morgun) en öllum til mikillar furðu eru það Jeremy og Geoff.  Veit ekki hvernig stendur á því en ég held barasta að ég nái að komast í gegnum námið með 4 markera á öllum stórverkefnum mínum, ef það eru ekki þessir tveir þá eru það Peter eða Jane. Skil ekki alveg af hverju það hittist alltaf þannig á að ég fæ sömu markera aftur og aftur á meðan flestir aðrir eru búnir að ganga í gegnum heilann helling.
    5월 14일

    Komin aftur

    Halló halló... long time no see.
    Jamm er sem sagt komin aftur í rigninguna í York úr sólinni á Mallorka.  Nenni ekki að skrifa langa ferðasögu þ.a. þið fáið hérna punktafrásögn og ef eitthvað er sem þarf frekari útskýringa við endilega hafa samband.
    • sólbrann á degi 3 eftir að hafa borðið á mig SPF 40 þrisvar
    • slapp við að vera stungin af marglyttu... ekki Lucy
    • fann leðurblökutegund sem ekki hefur áður fundist í garðinum.. vúhú
    • fékk lítinn svefn og lítið sólskin seinni vikuna vegna verkefnisins
    • what do you call a deer with no eyes???
    • hjólaði 2 klst á hverri nóttu í viku
    • fékk eitt moskítóbit (vakti ekki mikla aðdáun hjá hinum sem flest voru með bit í tugatali)
    • vann Lucy í Scrabble (hehehe)
    • belgískir kennarar eru ekki hræddir við að öskra PLONKER að ókunnugum ökumönnum
    • lærði kínverskt spil og breskt spil sem felst í að reyna að svindla (vann oftast þar sem það trúði því enginn að ég væri að svindla)
    • datt ekki úr kojunni
    • tókst að kenna Lindsay að segja nafnið mitt!!!!!!!
    • Vakti ekki mikla lukku hjá Olivier í "tímum" þar sem ég sagði EN eftir nánast hverja setningu hjá honum... En væri ekki betra að gera þetta svona... En er ekki skrýtið að gefa sér þetta... En þetta er ekki nákvæmast eða fljótlegasta aðferðin til að meta þetta... En er þetta ekki bara akkúrat það sem ég sagði!!!!!!!!

    Og margt margt fleira