Frida's profileFreknótt í fílingPhotosBlogListsMore Tools Help

Blog


    May 14

    Þegar maður hefur allan tímann í heiminum...

    ...þá hleður maður á sig fleiri verkefnum...

    Jamm... er á fullu að vinna að greininni minni og eigum við JBS fund á mánudaginn með mannerfðafræðingi sem er mikilsmetinn í tengslanetafræðum (og þá meina ég erfðafræðitengsl) og hefur hann skrifað lærðar greinar um hvernig ferðir manna í fyrndinni hafa haft árhrif á erfðabreytileikann í dag, ójá... smá panikk í gangi við að reyna að koma öllu saman fyrir það.  Væri svo sem í lagi ef ekki værir fyrir það að ég þarf að búa til plaggat fyrir ráðstefnu og þarf að vera komin með uppkast á mánudag (ekki búin að greina gögnin enn en hey hver pælir í svoleiðis) og svo þarf maður nöttla að undirbúa kennslu á föstudaginn... ekkert mál bara að kenna annars árs nemum að hanna, framkvæma og greina rannsókn (hvað er svoleiðis smá vandamál milli vina!). 

    Yes, I like being me... or do I...
    May 11

    Would you believe...

    ... að freknan sé í pilsi!!!

    Ójá, þetta blessaða veður í Jórvíkinni hefur orðið til þess að maður hefur þurft að grípa til örþrifaráða eins og að hætta sér út í hnésíðupilsi, hlýrabol og án sokka!!!

    Veit bara ekki hvernig þetta endar allt saman... ójá og endilega bið að heilsa í snjóinn á klakanum =0þ
    May 08

    Freknan verður freknóttari

    Það er nú bara hrein alveg með ólíkindum blíðviðrið lætur Jórvíkinga ekki í friði þessa dagana.  Ekki hægt að hætta sér út úr húsi nema hálfpartinn án fata og vart að það sjáist í himininn fyrir sól.  Sem betur fer þá eru engir gluggar á skrifstofunni minni (tja nema inn að skrifstofu JBS) og þar sem ég hef ekki haft mikinn tíma til aflögu þá hef ég ekki þurft að þola þetta veðurfar nema bara að litlu leyti. 

    Já uss... ridiculously hot og enn bara byrjun maí...

    Annars er ekkert í fréttum, bara svo þið vitið það!
    May 05

    The little miss...

    Hversu slæmt er það þegar JBS hefur ákveðið að kalla mig Little Miss Absent-minded Professorette!!!
     
     
    Ps. þessi mynd er reyndar að Little Miss Scatterbrain... sem er líklega það sem kemst næst =0p
    May 03

    Freknan hugsar upphátt...

    Jæja, þá er maður bara búinn að plana viku í júní, viku-ish í júlí og viku-hálfan mánuð í ágúst (og segið svo að maður sé ekki smá skipulagður) en nú er komin upp sú staða að ég neyðist víst til að plana hluti í lok ágúst og september... þ.e. ef ég ætla að gera það... þannig er nefninlega mál með vexti að ef ég ætla að vera í róðrafélaginu í bænum þá þarf ég víst að ákveða það sirka núna... planið var að reyna að kaupa hjól á einhverjum tímapunkti (höndla varla að vera hjóllaus mikið lengur) en það er varla að maður geti bæði keypt sér hjól og bundið sig í róðrarfélaginu...verst að maður þarf helst hjól til að komast að bátahúsinu... 
    Og nei... lausnin er ekki línuskautar...