Frida님의 프로필Freknótt í fíling사진블로그리스트기타 ![]() | 도움말 |
|
6월 29일 Rúgbrauð og plokkfiskurOhhh hvað ég er södd enda nýbuin að háma í mig plokkfisk og rúgbrauð, byrjaði reyndar daginn á ástarpungum sem var mjög hressandi. Erum þegar búnar að skella okkur í bæinn og ekkert eftir nema að taka sig til fyrir Dublin á eftir... R.E.M. here we come... 6월 28일 Biðin eftir BylgjuJæja, bara að koma að því. Bylgja syss bara næstum komin í fenin og við á leiðinni til Dublin á morgun!!!! Ætti kannski að reyna að taka aðeins til... nenni því varla.
Eiginlega ekkert í fréttum dagsins, fór í gær með Bai á synfóníutónleika í dómkirkjunni og geri aðrir betur... 6월 26일 Ég kann líka svona!!!!!!!!!!!!!!!Skrapp í bæinn áðan og áttaði mig snarlega á að þrátt fyrir flóðatíð þá er ferðamannatímabilið hafið. Jæja, ég þræddi göturnar fram hjá svíum í trukkavís, til að komast í Clintons og kaupa það sem Helga var búin að biðja mig um ef ég mundi rekast á það, þegar allt í einu ég snarsnérist á punktinum við það eitt að heyra konu tala í símann fyrir aftan mig. Ekki það ég er nú alveg vön því að fólk tali í simann á almannafæri en þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þessi kona var að gera... hún var að tala íslensku!!!!!!!!!!!!!!! Ég átti svo erfitt með að halda aftur af mér og hlaupa ekki til hennar öskrandi: "HEY, ÉG KANN LÍKA ÍSLENSKU", náði samt að hemja mig og hélt áfram, samt aðeins daprari en áður. Ekki það, Bylgja kemur víst á föstudaginn og hver veit nema hún fáist til að tala smá við mig. 6월 25일 Sveittur gouda í bleytunni...Blogg helgarinnar:
Annars mæli ég með tjaldstæðum í Skotlandi en ekki með rigningu... þetta er hætt að vera fyndið... 6월 19일 Stuttur spuniÉg var frekar góð um helgina og ákvað að halda upp á þjóðhátíðardaginn og 5 ára stúdentsafmæli með því að rölta í bæinn og kaupa mér stuttbuxur til að hjóla í til CSL (ég veit, rosa skemmtó plan). Ég fór í allar íþróttavöruverslanir í bænum og einhverjar tískuverslanir líka sem mér datt í hug að væru með stuttbuxur og viti menn það voru nú bara til stuttbuxur á mörgum stöðum. Hmmm... hugsa líklega einhverjir með sér, það voru til stuttbuxur, hana vantaði svoleiðis, hver er eiginlega tilgangurinn með þessari sögu. Jú, það get ég sko sagt ykkur. Ég keypti mér ekki stuttbuxur í þetta skiptið. Ástæða: stuttbuxurnar á markaðnum er ekki alveg það sem ég sé fyrir mér að mínir hvítu freknóttu fætur geti verið í, og afhverju: jú þar sem það sem stuttbuxurnar hylja þegar maður situr á hjóli er jafnframt það sem er hulið af vatnsheldum jakka ef það er rigning. Er nöttla með alveg frábær læri og allt það, en held samt að ég vilji frekar hjóla með sokkana utan yfir buxunum að svo stöddu frekar en að afhjúpa allt nema nærbuxnasvæðið fyrir gestum og gangandi svona dags daglega. En svona er ég nú bara... 6월 15일 Lögmál Murphy og miskunasamir samverjarMig undrar ekki að það sé varað við flóðum hér í Bretaveldi um helgina, hjólaði til CSL í morgun og ég get svo svarið að frá útihurðinni að hjólageymslunni (svona 10 skref) náði ég að verða rennandi. Ekki stöðvaði það mig og hélt ég ótrauð áfram í gegnum hellidembuna, pollana og heilu og hálfu stöðuvötnin á veginum.
Einhvern veginn virðist það samt sem áður vera þannig að það er eins og oft á tíðum sem það sé oggupínu óhappaský, svona einka bara fyrir mig, sem eltir mig á röndum, og svo var víst líka í dag. Haldiði ekki að það hafi sprungið á hjólinu og ég sem gleymdi að setja viðgerða kittið aftur í bakpokann eftir að hafa tekið til í honum fyrir 2 dögum. Jæja, ég varð nú bara að bíta í það súra og labba afganginn af leiðinni meðfram A64 þjóveginum í grenjandi rigningu.
Eftir margt sem á daga mína hefur drifið undanfarnar vikur var ég þess fullviss um að þetta væri merki um að ég væri lifandi sönnun fyrir lögmáli Murphy um að allt sem geti farið úrskeiðis geri það.
Jæja þar sem ég var að labba aftur heim eftir daginn (er svona 15km) var ég stoppuð af hjólagaur sem vinnur á CSL og lánaði mér kittið sitt til að gera við dekkið, hann þurfti að vísu að flýta sér heim þar sem hann átti stefnumót en lét mig hafa nafn og númer svo ég gæti bara skilað þessu eftir helgi. Ég var frekar ánægð og viss um að lukkan hefði nú loksins snúist mér í hag... svona alveg þangað til ég fann ekki ****** gatið (enda ekki eitthvað sem ég er vön að gera), jæja ég bölvaði Murphy og labbaði áfram.
Eftir þó nokkra stund dró svo heldur betur til tíðinda, haldiði ekki að maður á pallbíl hafi stoppað, gripið hjólið og kastað því upp á pall, sagt við mig að ég ætti reyndar aldrei að fara upp í bíl með ókunnugum en þar sem hann væri heimamaður þá ætti ég að drífa mig. Ekki þorði ég nú að mótmæla, og þá sérstaklega ekki eftir að ég opnaði hurðina og við mér blasti riffill! Maðurinn virkaði nú samt ekkert svaka hættulegur og sagðist bara hafa verið að veiða kanínur sem væru að éta nýju tréin sem hann var að planta á nýja "tjaldstæði" sonar síns, svona væri það þegar fólk væri búið að skjóta alla refina, hann væri nú bara með ref sem kíkti regulega heim til hans. Ekki sá ég nú reyndar refinn þrátt fyrir að hafa farið heim til mannsins! Æ, fór reyndar ekkert inn heldur sat bara í bílnum á meðann hann reyndi að pumpa í dekki, ekki gekk það þar sem gatið er greynilega of stórt þ.a. hann skutlaði mér bara á háskólasvæði. Frekar fínn náungi, er meira að segja kominn með númerið hans til að skreppa í heimsókn til hans einhvern tímann þar sem hann er með "vater voles" (eins og rotti í þýtur í laufi) á jörðinni sinn.
Alla vega, flóð á Englandi, fylgist spennt með. 6월 13일 It's not raining menEn það rignir nú samt...
Varð rennandi blaut við það að hjóla frá CSL í dag, það var miður skemmtilegt.
Fór annars í dýrabygginguna (sem er innan CSL svæðiðisins og auk þess innan við tvöfalda rafmagnsgirðinu sem er varin með gaddavír) til að tékka á rottunum mínum. Einhverjir 24 heppnir gaurar fá 8 vikna lengingu á líftíma sínum þar sem það á að fara að "hreinsa" til í þeim á morgun. Er svo að fara að gera tilrauna rannsókn á morgun og föstudaginn og verð að vinna í úrvinnslu svona með því. Hugsa samt að ég geti ekki byrjað af alvöru með tilraunina mína þar sem kontróllinn verður í fríi í næstu viku (þ.e. gaurinn sem sér um þær og er viðmiðunareinstalingurinn í tilrauninni). Ójá, verð með lengsta takk til lista í sögunni þar sem ég þarf svo að reyna að blikka hóp af fólki til að labba reglulega til rottanna minna, jamm og jájá... alltaf fjör hjá mér...
En jæja, ötli maður verði ekki að semja eitthvað bull fyrir siðanefndina... 6월 11일 WalesSkellti mér til Wales síðdegis á föstudaginn með Rosy þar sem Claire hitti okkur svo á laugardaginn. Tjölduðum á ótrúlega sætu tjaldstæði, sáum leðublökur, villtar geitur, fullt af pöddum en enga greifingja. Gerðum heilmikið af ekki neinu, þvældumst um, fórum að synda í á og í sjó og margt margt fleira. Alla vega Wales er næs... nenni ekki að skrifa meira... sjá myndir. 6월 6일 BúbúrúbúJamm, mín bara á fullu í að lesa um bönd milli rannsakenda og tilraunadýra. Jájá...
Annars er það í fréttum að ég á grænann hitabrúsa sem CSL gaf mér (gefur öllum "starfsmönnum" svoleiðis) þar sem það er bannað að vera með opna kaffi og tebolla á göngunum.
Jájá, alltaf eitthvað skemmtilegt að frétta hérna. 6월 4일 Það er komið sumarJamm... barasta komið sumar, þ.a. svona formlega þar sem ég byrjaði í dag á CSL að vinna að sumarverkefninu mínu. Eyddi meiri hlutanum af deginum í alls kyns "health and safety" fyrirlestra en fékk þó að eyða smá tíma á skrifstofunni "minni" (deili henni með Fiona, Adam og Peter) en þar er ég meira að segja með sér skrifborð og tölvu sem mér finnst einstaklega merkilegt.
Annars er ég reyndar enn álitin öryggisógn þ.a. Katja þarf að fylgja mér út um allt, greyið skinnið... en það er bara svona að vera hættuleg 6월 3일 Um helgina er ég búin að...
6월 1일 BÚIN!!!!!!!!!!!!!!!!YEEEEEEAAAAAAAAAAHHHHHHHHHh
Loksins, loksins, loksins... ég er búin í prófum!!!!
Ah... þetta er rosa gott =0) |
|
|