Frida님의 프로필Freknótt í fíling사진블로그리스트기타 ![]() | 도움말 |
|
7월 31일 Disturbance at the Heron HouseEf mér tekst að klára verkefnið mitt áður en ég skila því inn þá flokkast það undir kraftaverk og ég treysti því að einhver komi til með að láta rétta aðila vita svo ég komist í dýrlingatölu ef af því verður.
Á undanförnum tveimur vikum hef ég misst 3 myndatökuvélar og eitt sjónvarp. tímakóðarnir á amk 2 spólum (þ.e. 6 athugunum) eru ónýtir af óþekktum örsökum. Það er ekki hægt að færa af stafrænu myndavélinni yfir á venjulega spólu þ.a. ég þarf að fá myndadeildina á CSL til að millifæra á DVD fyrir mig. Þeir geta bara gert það af vélinni sem ég er með í láni þar sem af ókunnum og óeðlilegum ástæðum spilar engin önnur vél spólur sem hún hefur tekið upp!
Dagurinn minn er sem sagt:
kem rétt fyrir 9,
sett af stað yfirfærslur af litlum spólum yfir á stórar spólur,
hleyp í 30 mínútur til að vinna að gagnaöflun (leika í tölvunni),
hleyp til Gerry og ná í myndavélina (klukkan um 10),
hleyp í B25 og set myndavélarnar mínar af stað,
hleyp og skipti um spólur í yfirfærslu,
hleyp í 60 mín í gagnaöflun,
hleyp í B25 til að ná í myndavélin og slökkva á hinum,
hleyp til Gerry með myndavélina
hleyp í 60 mín gagnaöflun,
hleyp og skipti um spólur í yfirfærslu,
hleyp í 45 mín í gagnaöflun,
hleyp til Gerry og næ í myndavélina,
hleyp í B25 og set myndavélarnar í gang,
hleyp og skipti um spólur í yfirfærslu,
hleyp í 60 mín í gagnaöflun,
hleyp og næ í myndavélina og geng frá í B25,
hleyp með myndavélina til Gerry,
hleyp og skipti um spólur í yfirfærslu,
hleyp í 2 tíma í gagnaöflun (dagurinn að verða búinn, minna að gera),
labba og skipti um spólur í yfirfærslu,
fer heim (milli 6 og 7)
Gaman að vera ég... 7월 30일 Summer turns to highVúhú hún er farin hún er farin og nú er spáð sól eins langt og augað eigir...!!! 7월 29일 Today I need something more substantial...Í fréttum er þetta helst
7월 25일 ...fire...A fire has been reported; please leave the building through the nearest exit!!!
Hahaha... ekki nóg með að flutningabílar tali við mann þegar þeir bakka heldur er hægt að fá brunakerfi sem varar mann við eldi á mjög vingjarnlegann hátt... Ekki það, sá aldrei þennan eld og þurfti bara að vera úti í einhverjar 15 mínútur þ.a. ekki hefur þetta verið neinn rosalegur bruni... 7월 22일 This one goes out to the one I love =0)Í dag á ég afmæli... í dag er ég 25 ára... Úff... jæja ég er að minnsta kosti lifandi (annað en samdægringur minn Mendel) og er yngri en enn annar samdæmringur (Rufus Wainwright).
Annars ætluðum við að skreppa á brimbretti til Wales um helgina en eins og einhverjir hafa eflaust heyrt þá er ekki alveg besta veður í heimi hér á Bretlandseyjum og þar sem Wales var á kafi á föstudaginn og þjóðvegir víðsvegar lokaðir þá varð lítið úr þeim áætlunum.
Jæja, ekki þýddi að gráta það og skelltum við okkur því bara á þvæling í bænum í gær, borðuðum köku, fórum út að borða og skelltum okkur á Happy Potter í bíó (hef séð Ralph Fiennes myndarlegri, verð bara að segja það). Jájá... og svo á bara að baka köku á eftir og bjóða Bai og Mau Mau í köku (maður verður að borða fullt af köku á þessum aldri, lítið annað hægt að gera).
Annars bið ég ykkur bara lengi að lifa... bis later... 7월 19일 Radio free EuropeHeyrði í útvarpinu í dag að stjórnvöld eru búin að gefa út viðvörun fyrir morgundaginn, það er víst hætta á flóðum og þrumustormi... Ekki átti ég von á svoleiðis...
Skellti mér í heimsókn til Rosy í gær og eldaði fyrir hana fiskibollur í dós. Hélt hún yrði ekki eldri þegar ég var að elda þær, fannst þetta ekkert smá merkileg upplifun, vissi samt ekki alveg hverju hún ætti að búast við þegar hún reyndi í örvæntingu að lesa utan á dósina og áttaði sig á að þetta er líklega ekki stór útflutningsvara þar sem allar upplýsingar eru á ástkæra ylhýra.
Merkilegt nokk þá vakti þetta nú samt sem áður bara frekar mikla lukku... ótrúlegt en satt
Annars er það helst í fréttum að ég læstist ekki inni í B25, stjórnlausir dýraverndunarsinnar brutust ekki inn og limlestu mig og ég villtist ekkert þrátt fyrir slökt ljós og vöntun á því að einhver annar en ég væri inni í þessu alltof víggirta húsi... 7월 16일 The worst joke ever...!Krabbi: Stjörnurnar taka sig saman og auka félagslegan sjarma þinn. Það er eins og þú getir heilað hvern sem er. Daðraðu þig í gegnum vandræði.
Svo hljóðar stjörnuspá dagsins á mogganum.
Mín vandræði: ofhlaðið rafkerfi í vídeó herberginu. Tvö sjónvörp eyðilögð. Gögn fyrir rúmlega hálfan dag eyðilögð og ekki hægt að vinna meira fyrr en í fyrsta lagi á morgun vegna hættu á að það slái öllu út og það er ekki hægt að vista það sem ég er að gera fyrr en maður er búinn með hverja athugun...!!!
Veit ekki hvern ég ætti að daðra við til að redda málunum... 7월 15일 Until the day is doneVar ekkert smá dugleg áðan og hafði laugardag (veit það er sunnudagskvöld). Fann mig knúna til þess þar sem síðast þegar ég reyndi það (var reyndar ekki heldur laugardagur) þá gekk það frekar illa. Var bara nokkuð ánægð með árangurinn núna og viss um að Helga hefði alveg verið til í að vera í mat...
Annars var ég að skipta um lag í vídeó-inu. RW hefur nú vikið fyrir nýju lagi með R.E.M. af æfingakvöldinu sem við Bylgja fórum á (við vorum þarna þið vitið). Alla vega frekar flott lag... og Bylgja, ég hafði svo rétt fyrir mér "the working title" er "Until the Day is Done", hef samt ekkert reynt að komast að hver hefur flutt lag með þeim titli en eins og MS sagði: "I can name the f**king song what ever I want to"!!! 7월 14일 RadadararaMaður er búinn að vera blogglatur undanfarið... er reyndar búin að vera frekar löt svona almennt undanfarið. Ætlaði t.d. að skella mér til CSL í morgun til að reyna að fara yfir aðeins af myndböndunum mínum, ekki veitir víst af þar sem grófir útreikningar benda til að það taki mig um 6 vikur án svefns að fara yfir þau, það varð samt lítið úr því. Nennti ómögulega að verða blaut sjötta daginn í röð við að hjóla til eða frá CSL, þetta veður er ekki að gera sig (svona ef þið voruð ekki búin að ná því). Ekkert smá ósanngjarnt að fá sumarið í apríl og haust síðan þá.
Alla vega, skv. Matt þá er búið að gefa út flóðaviðvörun fyrir morgundaginn og mánudaginn, veit ekki hvort ég á að trúa honum, ég trúði Pete um síðustu helgi sem átti að vera þurr, en einhvern veginn þá er alveg eins líklegt að það verði framhald af flóðasumrinu... jey
En jæja, held maður farið að gera eitthvað gagnlegt, t.d. ákveða hvort ég að á nenna að elda linsubaunarétt eða hafa bara pasta í kvöldmatinn, á náttúrulega líka silung í frysti... úff þetta er erfitt... 7월 9일 SnarlEr það fyrsta vísbending um að maður sé of áhrifagjarn og sé búinn að vera of lengi með asíska meðleigjendur þegar maður er farinn að borða "hráa" sjávarréttar fingur sem snarl...? 7월 8일 Þurr!!!Í dag er fyrsti dagurinn í langann tíma þar sem ekkert hefur rignt á mig! Sorglegt en satt, það er bara vegna þess að ég hef ekkert farið út vegna þeirra einföldu skýringar að það er skýfall, þrumur og eldingar!!! Ójá, Pete sem lofaði að það mundi ekki rigna um helgina (#/&%#/$/%&) og svo bara búið að rigna báða dagana. En alla vega lítið annað hægt að gera en að kúra sig inn í teppi í herberginu sínu, borða fiskibollur í dós og lesa...ahhhhhh 7월 6일 Death is pretty final, I'm collecting vinyl..Jájá.... er farin að gera mér grein fyrir umfangi rannsóknar minnar, gæti skýrst af því að ég horfði upp á rúmlega 20 vídeó spólur eftir vikuna áðan og var ekki búin að taka allt upp á spólur samt sem áður.
Finnst ekki jafn skrýtið og áður að utan á vídeóherberginu (aðsetri mínu það sem eftirlifir sumars) stendur: "the Retreat, mental healthcare as unique as you are"! (fyrir þá sem ekki vita þá er the Retreat hæli hér í borg fyrir andlega vanheilbrigða...)
Jájá... gaman að því.
Annars var rigning í morgun, ekki í dag og ekki spáð um helgina. Looking good... 7월 5일 Jæja, þá kemur að þvíLoksins, loksins blogga ég.
Var sem sagt í Dublin um helgina með Bylgju syss og fór þar á æfingu hjá R.E.M.!!! Get ekki annað sagt en þeir voru nöttla frekar æðislegir eins og ávalt og það hefði ekki þurft mikið til að freist mín til að dvelja í viku í viðbót í Dublin til að ná afgangnum af æfingunum... ohhhh, alltof langt í næsta gigg...
Annars er flest við það sama, það rignir og sól þar á milli. Hefur tekist að verða gegndrepa tvo síðustu daga af því að hjóla frá CSL. Rosa rosa gaman.
Nenni ekki að skrifa meira... ætla að reyna að endurupplifa æfinguna með því að skella 1.000.000 á "fóninn". |
|
|