August 31
Margt gerst síðan síðast:
- Búin að skila inn skriflega hlutanum...
- Er með 700gr af sólblómafræjum á borðinu
- Komst að því að úgglendingar skilja ekki íslensku en það er til uppflettidót á netinu sem nörravinir mínir hika ekki við að nota ef þess þarf
- Hneykslaði Andy upp úr skónum með því að viðurkenna að ég hafi aldrei fílað rage against the machine, hef samt aldrei haft neitt á móti Audioslave sem er með 3 RATM meðlimum, held samt að það sé frekar vegna Chris Cornell.
- Teikna kall með geðveikislegt bros í hvert skipti sem ég blað og penna... neita því að það segi eitthvað til um andlegt ástand mitt
- Verð síðust með fyrirlestur í næstu viku... aftur...
Æ, já og meira...
August 13
Vegna fyrirspurna sökum bloggleysis þá er það helst í fréttum að ég er alvarlega að íhuga að hætta að blogga... kannski fólk finni sig frekar knúið til að segja manni hvað er í fréttum hjá því ef það þarf að hafa fyrir fréttum frá manni...
alla vega... frekari fréttir síðar... kannski