Frida's profileFreknótt í fílingPhotosBlogListsMore Tools Help

Blog


    September 21

    Ofurþorskur!!!!!!!!!!

    Bara svona að láta ykkur vita að í mars næstkomandi kem ég til með að úrskrifast með láði já... það er bara svoleiðis...
     
                       Smile
    September 14

    You're funny and you don't know why...

    Stundum syng ég lalala svo hátt innra með mér að það ratar alveg óvart út um munninn... getur leitt til undarlegra augngotna...
     
    Annars hef ég frá alltaf of litlu að segja þessa dagana... í gær var helst frétt dagsins að fingurgómarnir mínir voru undarlega þrýstnir, í dag er helsta fréttin úr smiðju erfðafræði býflugna, ötla nú samt ekkert að fara nánar út í það þar sem ég efast stórlega um hversu mikill almennur áhugi á málinu er... hver veit samt, fæ kannski fjölda áskorana um pistil um nánari stöðu erfðabreytileika býflugna í Bretlandi, efast samt um það.  Getið bara prísað ykkur sæl fyrir að vera í þeim hópi sem ekki fær upplýsingar um það óumbeðið. 
     
    Jájá, þannig er það...
    September 11

    There's something stranges going on tonight

    Viðburðarlitlir dagar... hmmm... fór með Rosy út í kirkjugarð áðan að týna ávexti og hnetur... vorum spurðar að því hvort við værðum systur eða tvíburar.  Við þóttumst ekki kannast við það en var ekki lítið skemmt þar sem hún er líklega 10 cm lægri, með svart hár, brún augu og ekki eina einustu freknu!!!  
    Jájá, skrapp í gær með Andrew, Claire og Rosy á Betty's. 
    Já... hvað meira.. æ man það ekki... 
    September 08

    Knock, Knock, Knock on wood

    Vó, þið vitið ekki hvað gerðist í gær.  Í gær gerði ég ekki neitt af viti, skellti mér út að hjóla með Rosy og Claire eftir langt spjall við Katy sem fær kannski grein eftir sig upp úr verkefninu sínu (geggjað!!!!!!!), elduðum svo fiskiböku og horfðum á Rugby.  Ójá og svo bara svona til að þið vitið það þá er England að keppa og því þarf að halda með því (svona ef ske kynni að þið setjist niður til að fylgjast með) en tilvonandi eiginmaður minn er samt að spila með Frakklandi þ.a. það má nú alveg hvetja þá áfram.  
    Nenni samt ekkert að vera í tölvunni... ætla að njóta þess að gera ekki neitt í nokkra daga þangað til ég fer að rifja upp allt sem ég hef gert síðusta ár svona ef ske kynni að Leeds prófessorinn sem kemur vilji eitthvað við mig tala.  
    September 07

    I can't be your alibi

    Búin með fyrirlesturinn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 
    September 03

    If you need an inspiration...

    Hljóp í Sainsbury's áðan. 
    Fór á leiðinni fram úr hóp kvenna sem virtust aðeins komnar fram yfir þann besta.  Nei annars, fór fram úr tveimur hópum kvenna sem virtust aðeins komnar fram yfir þann besta.  Þessir tveir hópar voru að mætast á gangstéttinni... voru amk að reyna að mætast.  Ég veit ég er vond en ég átti svoooooo erfitt með að stilla mig þegar þessir hópar aldraðra kvenna með göngugrindur og í svona rafmagnskerrum voru að reyna að mætast... gæti alveg trúað að þær væru þarna ennþá
    September 02

    It's over, it's over me!

    Gvöð hvað ég nenni ekki að gera þennan blessaða fyrirlestur, gæti næstum hugsa mér að gera hvað sem er annað þessa stundina. 
    Get samt svo sem ekki kvartað mikið nýkomin heim eftir að hafa skellt mér með Rosy í party til vina hennar í V-Yorkshire í gær.  Fullt af börnum þannig að partýið var frá miðjum degi og fram undir miðnætti.  Bættum það nú svo sem upp með því að sitja heima hjá Rob og Andy (þar sem við gistum) fram til að ganga 4 á chattinu.  Verð nú bara að segja að ég var ekkert smá kát að Rob skyldi vita hvað SNP's eru!!! Andy og Rosy voru ekki alveg jafn spennt og við Rob yfir erfðafræði tali, Andy enskukennarinn reyndi samt sitt besta í því að halda sig inn í líffræðinörra tali með því að benda á að hann vissi að amöbur væru einfrumungar (maður getur ekki annað en dáðst að enskukennurum með slíka líffræðiþekkingu)!  Jæja annars finnst mér nú að ég ætti að komast á samning hjá Amiinu þar sem mér er barasta að takast að dreifa þeim nokkuð vel um...
    Bis later